Góðvinur minn Kenneth Breiðfjörð á afmæli í dag. Afmælisdagur Kenneths er einn af þeim sem mér leyfist ekki að gleyma, þar sem hann deilir afmælisdegi með pabba.
Ef ég ætti að meta vini mína eftir því hversu oft þeir hafa heimsótt mig til Frakklands, þá er Kenneth minn besti vinur en hann hefur heimsótt okkur tvisvar á þessu eina og hálfa ári sem ég hef búið í Frakklandi.
Í fyrra skipti fórum við saman á kvennalandsleik Frakkland – Ísland og kom Kenneth þá að sjálfsögðu vopnaður þremur landsliðsbúningum svo við Jóhanna myndum nú ekki líta út eins og fífl við hliðiná honum.
Innilega til hamingju með daginn, vonandi verður hann þér góður. Svo er bara að fara panta næstu ferð út Kenneth, spurning hvort við skellum okkur ekki á úrslitaleikinn í Austurríki um helgina ?
Related posts:
- Pabbi, Kenneth og Mozart. Dagurinn í dag er merkilegur fyrir margar sakir. Ekki er...
- Til hamingju með afmælið afi! Eintómar afmæliskveðjur á blogginu í dag, en pabbi á afmæli...
- Heimsókn og frönskupróf Jæja, þegar kvartanir eru farnar að berast í commentakerfinu um...
- Bíóferð í Angers Við hjónin skelltum okkur í bíó um síðustu helgi. Krakkar...





