Ég rakst á þennan merkilega myndaramma á vafri mínu um netið um daginn. Þetta er að mínu viti klárlega næsta jólagjöf fyrir afa og ömmu. Picwing er sprotafyrirtæki sem framleiðir meðal annars stafræna myndaramma. Þessir myndarammar eru þó frábrugðnir hefðbundnum stafrænum myndarömmum að því leiti að þeir eru með þráðlausu netkorti. Það þýðir að þú getur tengt hvern myndaramma aðgangi þínum hjá fyrirtækinu og þannig sent myndir og jafnvel vídeo í rammann.
Þetta er klárlega sniðug gjöf sérstaklega þegar maður á ömmur og afa langt í burtu frá barnabarninu eins og í okkar tilviki. Fleiri fídusar eru í þróun hjá fyrirtækinu, en í fyrstu útgáfu, sem er reyndar uppseld, var hægt að fá upplýsingar um veður og hlusta á útvarpið o.fl.
Sjá má nánar um picwing ramman hér að neðan:
http://www.picwing.com/frame
Related posts:
- Meðmæli: Perpetuum Jazzile Rakst á þetta Vídjó hjá einum fésbókarvini mínum. Þetta er...
- Meðmæli: Hugmyndirnar í Gulleggi Innovit 2010 Það er gaman að sjá hversu gífurlega mikil þátttaka er...
- Meðmæli: Í lest í París Ég hefði ekki haft mikið á móti því að vera...
- Meðmæli: Michael Jackson tribute Vegna veikinda á ritstjórninni duttu niður nokkrir fastir bloggliðir í...
- Meðmæli: Ísenskur Bond á ferðinni ? Einhverjir snillingar heima á Íslandi hafa tekið sig til og...


