Gleðilegt árið öll sömul og takk kærlega fyrir kveðjur, kort og pakka.
Þá eru fransmennirnir búnir að koma okkur í samband við netið í nýju íbúðinni okkar í París. Höfum verið netlaus síðasta mánuðinn og því svolítið úr sambandi við umheiminn.
Mikið hefur gerst síðan við blogguðum síðast. Höfðum það afskaplega gott um jólin, þó að það hefði verið svolítið skrítið að vera bara 2 hérna úti og fjarri fjölskyldu og vinum. Þessara jóla verða sennilega lengi minnst sem matarjólanna miklu.
Ekki fengum við skötu á Þorláki, en fundum samt íslenskan saltara sem staðgengil. Aðfangadagur var allur undirlagður í matseld. Byrjuðum að matbúa um hádegisbilið og vorum að allan daginn. Auðvitað vorum við með foi gras á franska vísu í forrétt, aspas-súpu að hætti tengdamömmu í millirétt og svo fyllta önd í aðalrétt. Þar á eftir kom að sjálfsögðu franskur ostaplatti og svo frönsk súkkulaðikaka í eftirrétt. Yfir pökkunum var svo kaffi og íslenskt Nóa-Siríus konfekt, enda engin jól án þess.
Um áramótin fórum við svo í matarboð til vina okkar. Það var öðruvísi en vanalega, franskar ostrur og kampavín, en engir flugeldar eða áramótaskaup. Er ekki frá því að maður hafi aðeins saknað hinar týpísku Bolvísku áramótastemmingar sem alltaf myndast á Völó. Læt fylgja með nokkrar myndar af frönskum jólum.
- Jólakortasnúra fjölskyldunnar
- Champs Élysées á Þorláki
- Mikið skreytt
- Jóla Parísar-hjól á Concorde
- Champs Élysées úr Parísar-hjólinu
- Fyrsti réttur
- Jólatré litlu Parísar-fjölskyldunnar
- Aðalrétturinn skorinn
- Aðeins búið að narta í Andrés
Related posts:
- Nú er’að koma jól !! Nú get ég sagt að jólin séu að koma !...
- Jólamarkaður Í gær ákváðum við að skella okkur á fyrsta dag...
- Franskir páskar Gleðilega páska öll sömul. Það er nú meira hvað við...
- Nýjar myndir, heimsókn og Jóhanna Renault gella Síðustu dagar eru búnir að vera nokkuð góðir hjá okkur...
- Hvað ætla ég að verða þegar ég verð stór ? Þessi spurning hefur leitað ákaft á mig síðustu daga. Ég...













En gaman að sjá þessar myndir, hlítur að vera gaman að halda jólin svona saman
Gleðilegt ár!
kv. Ásdís Ben
Djöfull lýtur Andrés vel út þarna hjá ykkur. Gleðilegt ár kæru hjón.
Binni og co.