« « Kominn aftur til Frakklands með bloggsíðu í farteskinu   |    Forsíða     |    Erum við minni máttar ? » »

tivoli-copenhagen-dk012

Tívolí og frönskunám

Senda færslu í tölvupósti Senda færslu í tölvupósti

Jæja, þá virðist sem frönsku dugnaðarforkarnir sem vinna í skólanum hjá Jóhönnu séu loksins búin að laga netið hérna heima hjá okkur. Enda ekki nema rétt um 5 vikur síðan okkur var tilkynnt að það væri búið að kaupa nýjan router til að setja upp í húsinu hjá okkur. Frönsku verkfræðingarnir hafa sennilega verið í einhverjum vandræðum með að fá hann til að virka.  En þá eru allavegana allar afsakanir fyrir okkur að til þess að blogga ekki, brostnar.

Héðan er það helst að frétta að á stóru bílastæði við hliðiná skólanum hjá okkur er verið að setja upp Tívolí. Ég er reyndar nokkuð viss um að ef að það væru Íslendingar sem væru að vinna í þessari uppsetningu, hefði Tívolíið opnað um síðustu helgi. En það rímar ágætlega við það hvað þeir voru lengi að koma þessum router í gagnið. En í tengslum við þetta Tívolí er búið að setja upp heljarinnar hjólhýsabúðir. Þar eru stærstu hjólhýsi sem ég hef á ævi minni séð. Ekki bara svona stærðarinnar hjólhýsi sem við sjáum aftaní Daihatsu Charade á Hellisheiðinni, heldur eru þarna alvöru trailerar sem eru dregnir af vörubílum og eru svo útdraganleg á alla kanta. Úr þessu verða svo stærðarinnar íbúðir. Samt virðast þau ekki hafa pláss fyrir þvottavélar inni í þessum híbýlum sínum, því við Jóhanna rákumst á eina fyrir utan eitt hjólhýsið í gær og var hún á fullu að þvo loftfimleikabúningana fyrir einhverja sirkústrúðana undir berum himni. Það verður ágætt að geta farið í eitt klessubílarall og boðið konunni uppá Candy Floss ef hún fæst til að líta aðeins upp úr bókum.

Annars er það líka að frétta að ég er orðinn stoltur nemandi í Háskólanum í Angers. Ég byrja í skólanum á fimmtudagsmorgun og verð fjórum sinnum í viku í tímum. Tímasetningin er reyndar svolítið spes, en það gerir það bara að verkum að dagurinn verður meira planaður hjá mér sem verður góð tilbreyting frá aðgerðarleysinu. Ég er í tímum alla virka daga nema miðvikudaga, frá 10 til hálftólf og svo aftur frá 2 til hálffjögur. Stefnan er sett á að taka þetta á hörkunni og vera orðinn slarkfær í frönskunni á jólum.

Að lokum get ég líka sagt frá því að ég útskrifaðist loksins með B.Sc. frá Háskóla Íslands um síðustu helgi. Við Jóhanna gerðum okkur glaðan dag í því tilefni á laugardaginn. Fórum á markaðinn á laugardagsmorgun og keyptum ávexti og grænmeti í kílóavís. Fundum þar líka ostasala, sem var með oststykki á stærð við meðal vörubílsdekk. Elduðum svo túnfisksteik um kvöldið og fengum frábæra franska osta og frönsk rauðvín í stíl í eftirmat. Það er mjög ljúft líf að búa í Frakklandi, sérstaklega svona matar- og vínlega séð.

Jæja ætla að reyna að koma myndafídusnum í gagnið svo við getum farið að sýna ykkur einhverjar myndir frá þessari fallegu borg sem við búum í.

Yfir og út,

Magnús

Related posts:

  1. Er ekki kominn tími á smá blogg ? Jæja, ég geri fastlega ráð fyrir að okkar dyggu lesendur...
  2. Hetjudáð bræðranna að vestan! Við Kristinn bróðir höfum í gegnum tíðina ekki verið þekktir...
  3. Lyon var það heillin! Alltaf endar það með því að mánuðir líði á milli...
  4. Jólamarkaður Í gær ákváðum við að skella okkur á fyrsta dag...
  5. Afmæli og Þýskalandsferð Síðustu dagar eru aldeilis búnir að vera viðburðaríkir hjá okkur...

Senda færslu í tölvupósti Senda færslu í tölvupósti

« « Kominn aftur til Frakklands með bloggsíðu í farteskinu   |    Forsíða     |    Erum við minni máttar ? » »