Halla Katrín var einum of fljót að svara fyrri getrauninni. Vona að þessi reynist aðeins erfiðari. Og það er bannað að gúggla
Hér að neðan nefni ég fjóra íslenska og fjóra erlenda flytjendur. Ykkur er ætlað að para saman flytjendurna eftir lögum sem þeir hafa báðir sungið og segja hvað lögin heita á íslensku og “útlensku”. Sem sagt, útúr þessu eiga að koma 4 lög, heiti fjögurra laga á íslensku og útlensku og tveir flytjendur á hvert lag. 1 stig er í boði fyrir nafn á íslensku, eitt stig í boði fyrir nafn á útlensku og 1 stig fyrir rétt par. Alls 12 stig í pottinum.
Halla Katrín er sem stendur efst með 3 stig.
Flytjendurnir eru í stafrófsröð:
Bing Crosby
Eiríkur Hauksson
Frank Sinatra
Haukur Morthens
Laddi
Roy Wood
Ruth Reginalds
Shakin’Stevens
Related posts:
- Jólagetraun Guðni og Hildur voru með skemmtilega getraun á síðunni sinni...
- Jóóóólasveinninn kemur í kvöld… Það er komið að stórum degi í dagatali hvers jólabarns,...
- Next up: Croatia Það er ekki hægt að segja annað en að “strákarnir...



Heill og sæll Magnús og Jóhanna!
Síðasta prófið mitt á morgun, en eins og þið vitið skapast óhemju mikill frítími í prófalestri til að svara svona spurningabloggum á netinu. Mín ágiskun:
1. Roy Wood með “I Wish it Could be Christmas Every Day” sem Eiríkur Hauksson flutti undir nafninu “Ég vildi að það væru jól alla daga”.
2. Shakin’ Steven söng lagið “Happy christmas” en það var kallað “snjókorn falla” þegar Laddi coveraði það.
3. Bing Crospy söng lagið “The Little drum player” sem Haukur Mortheins kallaði “Littli trommuleikarinn” þegar hann útfærði það.
4. Hlýtur þá að vera Frank Sinatra og Rut Reginalds. Hef ekki hugmynd um hvaða lög þetta eru. Giska á “I did it my way” með Sinatra og “Ég fór mína leið” Með Rut
Til gamans má geta að ég bað Hlyn Einarsson um aðstoð í að svara þessum spurningum. Tíu stig til Stjána?
Já, eða heil og sæl!
Hehe… þetta er helvíti nærri lagi hjá ykkur félögunum…
1. Parið er rétt hjá ykkur þarna, Roy Wood og Wizzard með I wish it could be christmas og Eiríkur Hauksson söng lagið á íslensku, en það hét ekki Ég vildi að það væru jól alla daga. Þannig að 2 stig þar.
2. Aftur er parið rétt hjá ykkur, Laddi söng snjókorn falla og Shakin’ stevens á engilsaxnesku, en það hét ekki happy christmas samkv. mínum heimildum. þannig að þið fáið 2 stig þar.
3. Enn aftur er pörunin rétt hjá ykkur, en þið eruð ekki með sama lag og ég í huga, þó að það geti vel verið að þetta sé rétt hjá ykkur. Ég gef ykkur samt ekkert fyrir trommuleikaran. 1. stig þar.
4. Frank Sinatra og Ruth Reginalds er rétt pörun en lagið ekki rétt. 1. stig þar.
Kristján og Hlynur fá því 6 stig fyrir sitt gisk, en það eru ennþá 6 stig í pottinum
Sko…
1. Lagið heitir á íslensku einfaldlega Jól alla daga
2. Lagið heitir á frummálinu Rockin’ around the christmas tree
3. Ég giska á að lagið sé Jólaklukkur með Hauki Morthens og þá Jingle Bells með Bing Crosby.
4. Þetta gæti verið Jólasveinninn kemur með frú Reginalds og þá Santa Claus is Coming to Town með herra Frank.
JólaHildur fær punkt fyrir þetta síðasta.
Ég verð bara að segja að Frank Sinatra og Ruth Reginalds eigi lagið Santa Claus is coming to town , eða Jólasveinninn kemur í kvöld sameiginlegt.
Bing Crosby og Haukur eru með Jólaklukkur, eða Jingle Bells?
Össs….
1. Lagið heitir með réttu Jól alla daga. 1 stig þar.
2. Lagið sem um ræðir er ekki rockin around the christmas tree. 0 stig þar.
3. Jólaklukkur er ekki lagið 0 stig þar.
4. Jólasvenninn kemur í kvöld er rétt lag og Santa Claus is coming to town. 2. stig þar
3 stig til Hildar og Guðna, en ennþá eru 3 stig í pottinum
Halla þetta er rétt hjá þér með Santa Claus, en Hildur og Guðni voru rétt á undan. Ennþá vantar hvaða lag það er sem ég er með í huga sem Haukur Morthens og Bing Crosby hafa báðir ljáð rödd sína.
humm, white christmas með bing crosby-hvít jól með hauki
Þarna kom það. 2 stig á Höllu. Það er samt 1 stig eftir í pottinum. Það á eftir að svara því hvað Ladda lagið heitir á frummálinu.
Nú rokkað í kringum jólatréð
Nei… það heitir Snjókorn falla á íslensku eins og Krissi og Hlynur voru með í fyrsta commenti, en hvað hét það á ensku ?
Heyrðu… Ladda lagið heitir auðvitað Snow is Falling á frummálinu.
Þarna kom það. 1 stig í viðbót á þjóðverjana.
Staðan er þá þessi:
Krissi og Hlynur 6 stig
Halla Katrín 5 stig
Hildur og Guðni 4 stig
Þetta er hörku keppni. Skelli inn spurningu 3 á eftir. Um að gera að fylgjast vel með
á eftir???