Það er ekki hægt að segja annað en að “strákarnir okkar” kunni að halda manni í heljargreipum. Þvílíkur og annar eins leikur í gær! Jóhanna var reyndar ekkert alveg á því að leyfa mér að horfa á hann þar sem Guðmundur Elí varð svolítið hræddur við öskrin í pabba sínum í fyrri tveimur leikjunum, en sem betur fer fékk ég það í gegn með herkjum
Eftir frábæra byrjun sem kom okkur í 7-2 kom arfaslakur kafli og þá hélt ég að þessu væri öllu lokið. En svo kom magnaður seinni hálfleikur þar sem Danirnir höfðu ekkert í íslensku vörnina. Það er ekki nóg með að búið sé að kveða niður Svía-grýluna gömlu, heldur er ég ekki frá því að sú danska sé dauð líka. Held að þetta sé fyrsti leikur milli þessara liða sem ég man eftir að hafa séð sem endar ekki með jafntefli.
Nú er það bara málið að koma sér alla leið. Stefnan var alltaf sett á að komast í milli riðilinn með 3 stig og það tókst þrátt fyrir óvænt jafntefli í fyrstu tveimur leikjunum. Spurning að fara að leita sér að ódýru fari til Vínarborgar og horfa á strákana í úrslitunum. Er ekki einhver með ?
Related posts:
- Erum við minni máttar ? Við hjónin vorum rétt í þessu að horfa á Silfur...
- Sverrir og skólamál Jæja, þá er ég orðinn stoltur nemandi í ekki ómerkari...



Ég held að Guðni bíði eftir að fá tilkynningu að það sé búið að kaupa miða á leik í Austurríki….