« « Jóóóólasveinninn kemur í kvöld…   |    Forsíða     |    Jólagetraun » »

Hardfiskur - Icelandic dried fish

Nú er’að koma jól !!

Senda færslu í tölvupósti Senda færslu í tölvupósti

Nú get ég sagt að jólin séu að koma !  Við hjónin vorum að fá sendingar að heiman frá foreldrum okkar. Ég var að kvarta yfir því um daginn að fá ekki harðfisk um jólin og furða mig á því að ekki fengist Nóa konfekt í búðunum hérna, það er búið að leysa úr þeim vanda :) Vorum að enda við að borða vestfirskan harðfisk í hádegismat.

Einnig hefur það verið frekar leiðingjarnt að hafa ekki ofn og við höfum þess vegna ekki getað bakað. En að sjálfsögðu hefðum við bakað allavegana 6 sortir ef að ofninn væri til staðar. En í pökkunum að heiman voru bæði smákökur og skinkuhorn :)

Svo skemmir ekki fyrir að herlegheitunum var pakkað inn í íslensk dagblöð sem við eigum klárlega eftir að lesa upp til agna.
Takk fyrir okkur :)

Related posts:

  1. Komin í samband við umheiminn á ný Gleðilegt árið öll sömul og takk kærlega fyrir kveðjur, kort...
  2. Jólamarkaður Í gær ákváðum við að skella okkur á fyrsta dag...
  3. Franskir páskar Gleðilega páska öll sömul. Það er nú meira hvað við...
  4. Húsnæðismál Halló halló! Eins og einhverjir hafa eflaust frétt þá skelltum...
  5. Fréttir Jæja þá, ætli það sé ekki best að fara að...

Senda færslu í tölvupósti Senda færslu í tölvupósti

« « Jóóóólasveinninn kemur í kvöld…   |    Forsíða     |    Jólagetraun » »