Prófkjör sjálfstæðismannan fyrir komandi sveitastjórnakosningar fór fram í gær. Ég hef nú oft fylgst betur með í aðdraganda prófkjörs, en fylgdist með, með öðru auganu svona úr fjarska. Hanna Birna hlaut yfirburðarkosningu í fyrsta sætið, eins og kannski við var að búast. Hins vegar var ýmislegt sem kom mér á óvart í sætunum þar á eftir. Júlíus Vífill náði öðru sætinu, en bjóst ég ekki við að hann hefði svona gott bakland. Á eftir honum kom svo Kjartan Magg, en það kom mér líka svolítið á óvart. Ég bjóst við að Tobba og Gísli Marteinn yrðu ofar en bæði Júlíus og Kjartan.
Þá kemur Geir Sveinsson líka svolítið á óvart. Hann keyrði mikið á því í aðdragandum að það þyrfti að fá nýtt fólk til áhrifa sem hefði ekki þennan pólitíska bakgrunn eða hefði á einhvern hátt verið viðloðandi “hrunið”. Hann hefur vafalítið fengið mikið af atkvæðum út á það, en svo er spurning hvort að tenging hans við Villa hafi verið honum til framdráttar eða ekki. Það gæti eins hafa skemmt fyrir honum.
En heilt á litið frambærilegur listi. Ég hefði perósnulega raðað aðeins öðruvísi upp sjálfur en þetta lítur svo sem ágætlega út. Gaman að sjá að konurnar eru að taka þetta sex fjögur í efstu tíu sætunum, þó svo að karlarnir fjórir séu reyndar allir í topp sex.
No related posts.


