Jæja! Eins og ég gaf fögur fyrirheit um í síðustu færslu ætlaði ég að reyna að vera duglegri að blogga á þessu ári en því síðasta. Ég notaði því tækifærið og fór að leika mér aðeins í heimasíðunni í leiðinni. Búinn að setja upp nýtt útlit sem gefur möguleika á ótal bloggflokkum og fleiri fídusum. Það er spurning hvort að mér takist að standa við stóru orðin.
En ef að til tekst ætla ég að reyna að vera með einhverja sniðuga fasta dagskrárliði sem falla vonandi í góðan jarðveg.
P.s. hvernig er nýja útlitið að virka ? Á örugglega eftir að fikta eitthvað meira í því.
Óver and át,
Magnús
Related posts:
- Hvað ætla ég að verða þegar ég verð stór ? Þessi spurning hefur leitað ákaft á mig síðustu daga. Ég...
- Jóóóólasveinninn kemur í kvöld… Það er komið að stórum degi í dagatali hvers jólabarns,...
- Bloggferlagreining Ég fór að pæla aðeins í því hvað það er...
- Til hamingju með afmælið Kenneth! Góðvinur minn Kenneth Breiðfjörð á afmæli í dag. Afmælisdagur Kenneths...



Ég hef fulla trú á þér ástin mín ! En núna er þessi síða orðin svo tæknileg að ég þori ekki að snerta á henni nema í commenta kerfinu
Mér líst svaka vel á þetta!
Bíð bara eftir uppskriftasíðunni, er tilbúin með helling af uppskriftum til að setja inn.
Líst vel á ykkur, rosalega flott síða og gaman að fylgjast með
Ég styð hugmyndina hennar Hildar Margrétar, uppskriftarflipa