« « Jólamarkaður   |    Forsíða     |    Nú er’að koma jól !! » »

santa-reading283746234

Jóóóólasveinninn kemur í kvöld…

Senda færslu í tölvupósti Senda færslu í tölvupósti

Það er komið að stórum degi í dagatali hvers jólabarns, fyrsti jólasveinninn kemur til byggða í kvöld. Ég verð samt að viðurkenna að þessi stóri dagur er búinn að valda mér óvenju miklu hugarangri í ár…

Vanalega eru helstu áhyggjurnar tengdar því hvaða skór á að fara út í glugga. Núna var ég að hugsa um að setja brúðarskó en svo fattaði ég að hann er með gati á tánni, Jóli gæti átt erfitt með að treysta götóttum skóm. Þá fór ég að hugsa um að setja háhælaða pæjuskó en fattaði svo að það er ekkert rosalega mikið pláss í þeim svo Jóli gæti þurft að minnka gjafirnar en það er alls ekki á stefnuskránni. Ég held að niðurstaðan verði að setja pæjustígvél, þau eru flott, með háum hæl, ekki götótt og það kemst nóg í þau.

Hitt sem er búið að valda mér töluvert meiri áhyggjum er það hvort Jólasveinninn viti ekki örugglega hvar ég á heima. Það gæti hins vegar verið einhverjum vandkvæðum bundið. Til að byrja með hef ég sennilega sett einhverskonar met í fjölda staða sem ég hef búið á síðustu ár. Í ofanálag bý ég náttúrulega ekki á Íslandi og það er spurning hvort íslensku Jólasveinarnir leggist í ferðalög út fyrir landsteinana. Þegar ég var alveg að verða komin með magasár yfir þessu um daginn þá var ég svo heppin að Magnús hitti Jóla á leiðinni heim úr skólanum og hann sagðist alveg vita hvar við ættum heima og að ég þyrfti engar áhyggjur að hafa :D Ég veit ekki hvað ég gerði án Magnúsar ;)

Annars reyndi ég að útskýra íslenska Jólasveina-systemið fyrir Shasha, íranska vini mínum, í gær og það gekk bara alls ekki nógu vel. Hann botnaði bara ekkert í því af hverju við hefðum 13 jólasveina sem í ofanálag væru hrekkjóttir og þjófóttir. Svo varð þetta ennþá fyndnara því franska nafnið á jólasveini er “Faðir jólanna” sem á ekkert sérlega vel við 13 ótínda glæpamenn.

En það er víst best að fara að koma sér í bólið svo ég fái örugglega eitthvað í nótt… ;)

Related posts:

  1. Next up: Croatia Það er ekki hægt að segja annað en að “strákarnir...
  2. Heimsókn og frönskupróf Jæja, þegar kvartanir eru farnar að berast í commentakerfinu um...

Senda færslu í tölvupósti Senda færslu í tölvupósti

« « Jólamarkaður   |    Forsíða     |    Nú er’að koma jól !! » »