« « Húsnæðismál   |    Forsíða     |    Jóóóólasveinninn kemur í kvöld… » »

img_1079

Jólamarkaður

Senda færslu í tölvupósti Senda færslu í tölvupósti

Í gær ákváðum við að skella okkur á fyrsta dag jólamarkaðarins hérna í Angers. Þar sem við erum búin að eyða ansi miklum tíma bara tvö saman ákváðum við að brjóta þetta aðeins upp, röltum yfir í næsta hús og drösluðum írönsku strákunum tveimur með okkur. Við vissum svosem ekkert út í hvað við vorum að fara en þetta var bara alveg ágætt.

Við byrjuðum á að troða okkur inn í einhverja skrítna útgáfu af tjöldum, held að þetta hafi verið fyrsta skipti sem Magnús hefur þurft að beygja sig til að komast inn um hurð… :-) Þarna inni voru alls konar skrítnir listmunir, föt, skart og annað skran til sölu. Við sáum það að íslendingar eru ekki þeir einu til að búa til stöff úr þæfðri ull, var alveg slatti af svoleiðis.

Svo þegar við röltum meira um bæinn var búið að koma upp litlum kofum um allt þar sem er hægt að kaupa ótrúlegasta dót. Spil, gestaþrautir, kerti, lampa og ég veit ekki hvað og hvað. Okkar uppáhalds kofar voru að sjálfsögðu þeir sem voru með mat og drykk. Fengum okkur heitt kakó og heitt vín og dáðumst að ótrúlega úrvalinu af hinum ýmsustu pylsum.

Mig langar rosalega að fá að fara í svona fína hringekju eins og eru úti um allt um jólin en neinei, ég fæ ekki að fara í svoleiðis. Strákunum fannst ég óþarflega stór til að fá að fara eina ferð, ég skil ekkert í þessu. Á sennilega eftir að fara í leynilega ferð í bæinn og fara í rómantíska ferð í hringekjunni með sjálfri mér :D

Svo er komin risa mynd af jóla á aðal verslunargötuna í borginni…

Á myndinni má sjá listamanninn með varðhundinn sinn með sér. Karlgreyið var svo bólginn á höndunum af kulda að ég var alvarlega að spá í að gefa honum vettlana mína í staðinn fyrir klink.

En svona er  semsagt jólastemningin hérna hjá okkur. Allt að gerast og við getum ekki beðið eftir jólunum :-)

Related posts:

  1. Afmæli og Þýskalandsferð Síðustu dagar eru aldeilis búnir að vera viðburðaríkir hjá okkur...
  2. Franskir páskar Gleðilega páska öll sömul. Það er nú meira hvað við...
  3. Er ekki kominn tími á smá blogg ? Jæja, ég geri fastlega ráð fyrir að okkar dyggu lesendur...
  4. Hvað ætla ég að verða þegar ég verð stór ? Þessi spurning hefur leitað ákaft á mig síðustu daga. Ég...
  5. Fréttir Jæja þá, ætli það sé ekki best að fara að...

Senda færslu í tölvupósti Senda færslu í tölvupósti

« « Húsnæðismál   |    Forsíða     |    Jóóóólasveinninn kemur í kvöld… » »