Jæja, ég geri fastlega ráð fyrir að okkar dyggu lesendur séu búnir að taka síðuna okkar útúr blogghringnum sínum vegna lélegrar uppfærslutíðni. Við virðumst ekki vera neitt sérlega öflugir bloggarar!
En þar sem mikið hefur gerst hjá okkur á síðasta hálfa ári eða svo frá síðustu færslu, ætla ég að reyna að koma með einhverjar fréttir og jafnvel kasta inn einhverjum myndum af erfingjanum.
Frá síðustu færslu hefur heldur betur mikið gerst hjá okkur. Guðmundur Elí dafnar vel, hann er búinn að finna bakkgírinn og bakkar nú um öll gólf og reynir og reynir að komast áfram en ekkert gerist. Hann nær að koma sér upp á fjóra fætur og vaggar sér þannig fram og til baka, en kemst ekki áfram ennþá. Það er frekar fyndið að fylgjast með honum reyna þetta og skiljanlega verður hann pirraður þegar hann færist alltaf fjær hlutnum sem hann vill ná í, þar sem hann kann bara á bakkgírinn. En þetta hlýtur að fara að koma hjá honum. Um daginn tók hann svo upp á því að taka snuð sem vakti mikla furðu foreldrana. Við höfum neitað að gefast upp og alltaf af og til stungið upp í hann snuðinu en hann var alltaf fljótur að skjóta því útúr sér í flottum boga þangað til um síðustu helgi. Í gær kom svo skýringin á þessu held ég, þegar fyrsta tönnin gægðist upp úr gómnum. Hann hlýtur að hafa náð að minnka óþægindin með því að totta snuðið. Við foreldrarnir erum auðvitað að rifna úr stolti yfir öllum framförunum hjá honum og finnst okkur hann vera orðinn hálf fullorðinn.
En yfir í fréttir af foreldrunum. Jóhanna kláraði kúrsana í mastersnáminu sínu í desember og nú á hún bara eftir að vinna verkefni í samstarfi við franskt fyrirtæki til að ljúka meistaragráðunni. Hún situr því límd við tölvuskjáinn allan daginn núna og reynir að finna sér fyrirtæki við hæfi sem vill taka hana í þetta starfsnám. Það er ýmislegt í gangi hjá henni en því miður ekkert fast í hendi enn sem komið er.
Hvað mig varðar, þá byrjaði ég í meistaranámi í frumkvöðlafræðum síðasta haust. Það var svolítið erfitt til að byrja með, þar sem allt var kennt á frönsku en gerði það að verkum að franskan mín er öll að koma til. Hinsvegar leist mér ekki betur á námið en svo að ég hætti fyrir jólin. Nú er ég því að horfa í kringum mig eftir vinnu eða einhverjum verkefnum og melta með mér hvort ég fari í annað nám næsta haust.
Jæja segjum þetta gott í bili, ég ætla að gera tilraun til að vera aðeins duglegri að blogga á nýju ári.
Related posts:
- kominn tími á blogg Jæja… það verður varla hjá því komist mikið lengur að...
- Jólamarkaður Í gær ákváðum við að skella okkur á fyrsta dag...
- Guðmundur Elí orðinn stóri frændi Kristinn bróðir og Salóme eignuðust litla stelpu í morgun. Hún...
- Þá hefur litla fjölskyldan stækkað um helming Jæja loksins er hann gríslingur okkar kominn í heiminn og...
- Afmæli og Þýskalandsferð Síðustu dagar eru aldeilis búnir að vera viðburðaríkir hjá okkur...



Tad var laglegt, er búin ad bída eftir tessari faerslu mjöög lengi:)
Hann er aedi hann Gudmundur Elí, var ad skoda myndir af honum og fylltist um leid mikilli löngun um ad bruna til Parísar og koma ad hitta ykkur, verd ad sjá hvad ég get gert svona naestu daga og vikur
Bestu kvedjur frá okkur í Köln
Jii hvað ég var glöð, að það kom blogg, ég er búin að kíkja reglulega í 6 mánuði he he
og Guðmundur Elí algjört æði, hlakka til að sjá fleiri myndir,
knús frá Íslandi
Loksins loksins!
Litli prinsinn verður farinn að skríða áður en þið vitið af….ótrúlega fyndið samt þegar þau eru bara bakkandi um allt!
Hlökkum til að fá ykkur í heimsókn, þurfum bara að ákveða dagsetningu þegar það er hægt.
Bíddu játsa!!!! Það eru nú meira hvað síðan er orðinn flott maður. Ég las þetta blogg um daginn á allt allt annarri síðu.
MME kominn í beina samkeppni við MBL í fídusum.
Já og ég skil ekkert í þér að nota þá ekki. Ef þú hefðir skráð þig inn í gegnum facebook áður en þú commentaðir hefði facebook prófíl myndin þín birst við commentið
Já þetta lofar góðu. Maður þarf nú sjálfur að herða róðurinn. Hefur verið eitthvað slappur bloggvetur.