Jæja þá, ætli það sé ekki best að fara að skríða úr híðinu og láta aðeins í sér heyra
Við Guðmundur Elí komum loksins heim á föstudag eftir ágætis dvöl á fæðingarheimilinu. Fyrirfram var ég nú búin að ákveða að það væri alveg glatað að þessir læknaskrambar ætluðu að halda mér þarna í marga daga en svo þegar á reyndi þá var þetta bara hreint ekki svo slæmt. Kokkarnir þarna gera sér allavega fulla grein fyrir næringarþörf nýbakaðra mæðra, mér til mikillar ánægju. Ég fékk þriggja rétta máltíð bæði í hádeginu og á kvöldin, eins og allir lágmarks standardar gera ráð fyrir hérna í Frakklandi
Ekki versnaði það svo þegar ég kom heim. Elskulegur eiginmaður minn og móðir eru búin að gera allt sem þau mögulega geta til að bæta mér upp það sem ég hef ekki mátt borða síðustu mánuði. Fyrsta daginn heima fékk ég blóðuga nautasteik og dýrindis osta úr ógerilsneyddri mjólk og þann næsta risa sushi platta, hreint ekki svo slæm meðferð það!
Annars er lífið bara ósköp ljúft hjá okkur þessa dagana. Guðmundur Elí sefur og borðar og við hin sitjum og dáumst að honum allann liðlangann daginn. Hitabylgjan hefur tekið sér smá pásu í bili, það er búið að vera alveg þolanlegt hitastig í dag og úrhellis dembur inn á milli. Það var óneitanlega skemmtilegt að geta loksins klætt drenginn í eittnvað annað en ermalausar samfellur.
Stefnan er svo sett á að koma heim næsta sunnudag. Magnús fer á morgun og sækir um neyðarpassa fyrir kútinn og þá ætti þetta vonandi allt að vera orðið klárt. Svo er bara að reyna að pakka einhverju niður sem gæti orðið ansi skrautlegt þar sem ég þarf að taka föt sem passa núna og föt sem passa eftir mánuð og ég veit ekki hvað!! Spurning hvort aumingjans Magnús verði orðinn algrár eftir allt þetta havarí…
Related posts:
- Er ekki kominn tími á smá blogg ? Jæja, ég geri fastlega ráð fyrir að okkar dyggu lesendur...
- Þá hefur litla fjölskyldan stækkað um helming Jæja loksins er hann gríslingur okkar kominn í heiminn og...
- Læknavísindi eru engin geimvísindi. Jæja það er greinilegt að við hjónin erum ekki þau...
- Gríslablogg Eins og sést myndunum sem fylgja með þessari færslu má...
- Jólamarkaður Í gær ákváðum við að skella okkur á fyrsta dag...



Ó hvað ég hlakka mikið til að hitta ykkur!!! Panta göngutúr í gegnum vesturbæinn með ykkur mæðginunum sem allra fyrst!
Vá eru þið bara að koma strax
jii minn ég verð þá að fara prjóna eins og brjálæðingur er ekki enn búin með fyrir Erlu systir.
)
En hlakka alveg rosalega mikið að hitta ykkur
Góða ferð
Sjáumst bráðlega
kveðja
Birna
Hlakka rosalega mikið til að fá ykkur heim til íslands:*
Hæ hæ,
Það er eiginlega mjög langt síðan þið settuð inn myndir, ég kíki átta sinnum á dag eftir nýjum myndum:)
Annars er smá svona abbó í okkur að þið séuð að knúsa fólkið ykkar á íslandi:)
Kossar og knús á ykkur frá okkur
Sætastur, get ekki beðið eftir að fá að hittar ykkur öll, vorum að spá í að fá að kíkja í heimsókn eftir helgi þegar þið komið suður.
Bestu kveðjur Ragnhildur
p.s Magnús þú passar hana systur mína um helgina he he
Vorum ad skoda myndir af prinsinum, hann er algjört aedi, og hefur tad greinlega mjög gott á Íslandinu…
Hlökkum mikid til ad hitta kút
Kaupmannahöfn kallar á París……knús og kossar og helling af fallegum hugsunum til ykkar.
Heil og sæl Parísarbúar
Gerist ekkert markvert þarna á meginlandinu eða?? hehe
kv
Birna
Hæ hæ
Er ekkert að gerast í París??? Alltaf gaman að skoða myndir af drengnum
knús í krús
Birna