« « Bíóferð í Angers   |    Forsíða     |    Jólamarkaður » »

n690323448_131941_6469

Húsnæðismál

Senda færslu í tölvupósti Senda færslu í tölvupósti

Halló halló!

Eins og einhverjir hafa eflaust frétt þá skelltum við okkur til Parísar í gær að skoða íbúð. Við fórum semsagt í hádeginu, eftir próf hjá mér, með 1000 evrur í vasanum og það hugarfar að ef íbúðin væri hálf dísent þá tækjum við hana á staðnum. Fyrir þá sem ekki skilja þessa einkennilegu pælingu þá er leigumarkaðurinn á Parísarsvæðinu algjör horror, við vorum búin að sjá fyrir okkur að leigja 20 fm stúdíóholu á 1000 evrur og tapa geðheilsunni löngu fyrir vorið;-)

Allavega þá fórum við út úr RER B í úthverfinu Bourg la Reine og fórum að leita að húsinu þar sem við ætluðum að skoða. Ótrúlegt en satt þá viltumst við bara ekki neitt og fundum húsið í fyrstu tilraun. Það var frekar óhrjálegt að utan og greinilega einhverjar framkvæmdir í gangi þannig að bjartsýnin fór aðeins að dvína. En þegar við komum inn þá leist okkur aðeins betur á. Magnús varð reyndar frekar skrítinn á svipinn þangað til ég benti að horfa á stóru myndina en ekki smáatriðin.

Íbúðin er semsagt heil hæð!! Jammjamm, en samt ekki nema 47 fm, sem er þó nokkuð stórt á þessu svæði. Hún er með pínulitlu svefnherbergi, stórri stofu og borðstofu og ágætis eldhúsi(það er samt ílangt sem ég á pínu erfitt með en hlýt að venjast því). Það er forljótt ljóst teppi á gólfinu í herberginu og stofunni, verður lappað upp á það með mottum, og veggirnir eru ljós grá-bláir, fáum vonandi að mála. Helsti kosturinn sem ég sá var það að það eru gluggar úti um allt svo þetta er sennilega bjartasta íbúð sem ég hef komið inn í í París. Svo er skólinn minn í 10 mín fjarlægð og risa garður líka. Svo tekur ekki nema korter að fara inn í miðbæ Parísar með RER.

Allavega, eftir skoðun var okkur boðið í te á efri hæðina þar sem leigusalarnir búa. Við sátum þar og spjölluðum í lengri tíma. Þau eru semsagt tyrknesk hjón sem eru búin að búa í Frakklandi í 30 ár og eiga 2 stelpur. Þeim leist svo vel á okkur að á endanum fórum við út skælbrosandi með lyklana í vasanum :-)

Nú viljum við helst bara byrja að pakka og koma okkur til Parísar. Erum komin með alveg nóg af þessari landsbyggðar útlegð. Svo er skipulagning fyrir fyrstu mömmulausu jólin komin á fullt. Það er víst ýmislegt sem þarf að huga að þegar mamma er ekki á svæðinu til að elda.

En jæja, þetta voru allavega góðu fréttir þessarar viku:)

Related posts:

  1. Afmæli og Þýskalandsferð Síðustu dagar eru aldeilis búnir að vera viðburðaríkir hjá okkur...
  2. Gríslablogg Eins og sést myndunum sem fylgja með þessari færslu má...
  3. Fréttir Jæja þá, ætli það sé ekki best að fara að...
  4. Gríslingur Þar sem það er laugardagur í dag ákvað ég að...
  5. Nú er’að koma jól !! Nú get ég sagt að jólin séu að koma !...

Senda færslu í tölvupósti Senda færslu í tölvupósti

« « Bíóferð í Angers   |    Forsíða     |    Jólamarkaður » »