« « Læknavísindi eru engin geimvísindi.   |    Forsíða     |    Hvor er hvað ? » »

IMG_1615

Þá hefur litla fjölskyldan stækkað um helming

Senda færslu í tölvupósti Senda færslu í tölvupósti

Jæja loksins er hann gríslingur okkar kominn í heiminn og hefur fengið nafnið Guðmundur Elí. Fyrstu dagarnir eru búnir að vera alveg frábærir og svífa foreldrarnir um á bleiku skýi. Eins og sést á myndunum var mikið vandað til verksins og er afraksturinn eitt það myndarlegasta barn sem fæðst hefur.

Fæðingin gekk nokkuð vel fyrir sig. Við vorum komin upp á fæðingarheimili klukkan 2 aðfaranótt mánudags og Guðmundur Elí kom í heiminn klukkan 12:50. Hann mældist 51,5 cm og vó 3900 g. Mæðginin þurfa að vera á fæðingarheimili í nokkra daga, en það er venjan hér í Frakklandi. Þau fá væntanlega að koma heim á föstudag eða laugardag. Það er svolítið erfitt fyrir pabbann að þurfa að yfirgefa þau á hverjum degi, en það verður þá bara þeim mun betra að fá þau heim aftur.

Þakka ykkur kærlega fyrir allar kveðjurnar. Það  eru komnar einhverjar nýjar myndir inn á myndasíðuna sem við eigum reyndar eftir að fara betur í gegnum og taka út þær sem ekki eru í fókus og svona. Svo eru hér að neðan myndskeið frá því að prinsinn fékk fyrsta baðið sitt í dag, en hann var ekki alveg sáttur við það eins og sjá má.

blah

blah

Related posts:

  1. Fréttir Jæja þá, ætli það sé ekki best að fara að...
  2. Meðmæli: Perpetuum Jazzile Rakst á þetta Vídjó hjá einum fésbókarvini mínum. Þetta er...
  3. Gríslingur Þar sem það er laugardagur í dag ákvað ég að...
  4. Er ekki kominn tími á smá blogg ? Jæja, ég geri fastlega ráð fyrir að okkar dyggu lesendur...
  5. Ný video af GEM Ég er búinn að vera nokkuð duglegur að skella vídjóum...

Senda færslu í tölvupósti Senda færslu í tölvupósti

« « Læknavísindi eru engin geimvísindi.   |    Forsíða     |    Hvor er hvað ? » »