Jæja… þá er maður loksins að láta undan pressunni. Við ætluðum svo sem að vera löngu byrjuð að blogga, en netið hérna á háskólasvæðinu þar sem við búum hefur ekki verið uppá marga fiska.
Ég skellti mér heim til Íslands á síðasta sunnudag og var alla síðustu viku. Andri fékk mig heim til að taka þátt í skipulagningu á “Hugsprettu – Landnám nýrra hugmynda “. Það var fínt að komast aftur heim og sökkva mér í vinnu í eina viku. Góð tilbreyting frá því að vera heimavinnandi húsfaðir í Frakklandi
Jóhanna upplifði sig samt svolítið vanrækta. Ekki nóg með það að hún hafi þurft að vera ein og yfirgefin í Frakklandi þegar hún útskrifaðist í febrúar, heldur stakk ég hana af á 25 ára afmælinu hennar í þokkabót ! Hún verður nú vonandi búin að fyrirgefa mér það fyrir jólin.
En jæja, þá er allavegana komin inn ein færsla. Skuldum ykkur nokkrar góðar til að segja frá síðustu mánuðum, reynum að kasta inn sögum af flutningum og fleiru á næstu dögum.
Yfir og út,
Magnús
Related posts:
- Er ekki kominn tími á smá blogg ? Jæja, ég geri fastlega ráð fyrir að okkar dyggu lesendur...
- kominn tími á blogg Jæja… það verður varla hjá því komist mikið lengur að...
- Skyldi það takast í þetta skiptið ? Jæja! Eins og ég gaf fögur fyrirheit um í síðustu...
- Hvað ætla ég að verða þegar ég verð stór ? Þessi spurning hefur leitað ákaft á mig síðustu daga. Ég...
- Jóóóólasveinninn kemur í kvöld… Það er komið að stórum degi í dagatali hvers jólabarns,...



Ohh, en gaman að þið séuð farin að blogga
Verð fastagestur hérna inni!!!
Knús,
Katrín