« « Gríslablogg   |    Forsíða     |    Þá hefur litla fjölskyldan stækkað um helming » »

IMG_0311 (480x640)

Læknavísindi eru engin geimvísindi.

Senda færslu í tölvupósti Senda færslu í tölvupósti

Jæja það er greinilegt að við hjónin erum ekki þau duglegustu að blogga þrátt fyrir að það sé frá mjög mörgu að segja.

Í síðustu viku fórum við í læknisheimsókn sem við vorum búin að bíða mjög spennt eftir. Læknirinn hafði kvatt okkur þremur vikum fyrr með þeim orðum að barnið væri svo duglegt að stækka, að líklegt væri að fæðing yrði sett í gang töluvert fyrir settan dag. Gerðum við því allt eins ráð fyrir því að hann myndi vilja setja allt af stað í kjölfarið á þessari skoðun. En nei, Gríslingurinn hefur greinilega orðið logandi hræddur við orð læknisins og passað sig á því að halda aðeins aftur af sér, því að hann mældist nokkurn veginn jafn þungur í þessari skoðun og hann hafði mælst þremur vikum fyrr. Fær hann því að hafa það notalegt í maganum á mömmu sinni aðeins lengur og erum við því aftur farin að horfa á settan dag (Halla Katrín það er ennþá séns að þú fáir barnið okkar í afmælisgjöf :) )

En yfir í annað. Mamma og pabbi komu til okkar um daginn og voru hjá okkur í eina viku sem var alveg frábært. Þau komu hingað 11. júní, daginn fyrir afmælið hennar mömmu. Þar sem Jóhanna er ennþá á fullu í skólanum, þá vorum við mamma og pabbi bara að flækjast um París á daginn og fórum svo heim og elduðum fyrir hina óléttu sem var þá yfirleitt orðin útkeyrð eftir langan dag í skólanum. Mamma og pabbi hafa nú komið nokkrum sinnum til Parísar áður, þannig að við létum hina týpísku ferðamannastaði nokkurn veginn alveg eiga sig, enda varla líft þar á þessum árstíma fyrir myndavélabrjáluðum túristum. Við kíktum þó í kirkjugarðinn í 20. hverfi og heimsóttum leiði Chopin og Jim Morrison og leigðum okkur svo hjól og hjóluðum París þvera og endilanga á einum degi.  Að sjálfsögðu teymdum við þau líka í garðinn okkar, Parc de Sceaux, þar sem við nutum sólarinnar, en sólin var algerlega í essinu sínu á meðan á heimsókninni stóð. Hún einungis rétt dró sig í hlé á meðan smá rigningarúði gerði vart við sig einn daginn, en var annars í aðalhlutverki.

Þó að gríslingur hafi ekkert látið sjá sig á meðan að afinn og amman voru í heimsókn voru ýmis önnur tíðindi sem bárust. Ég fékk svar í vikunni um að ég hefði komist inn í ADVANCIA, en þar fer ég í mastersnám í frumkvöðlafræðum í haust. Þetta gerir það að verkum að ég þarf virkilega að spýta í lófana, því að nánast öll kennsla fer fram á frönsku. Nú er eins gott að sýna að ég geti verið eins snöggur að ná frönskunni og Jóhanna.

Aðrar fréttir voru þær að Eva “systir” og Toni eignuðust lítinn strák þann 18. júní og bíða þau núna bara eftir fréttum frá okkur um að lítill leikfélagi sé kominn í heiminn.

En annars erum við bara á haus í að undirbúa komu erfingjans. Ég er búinn að vera fikta aðeins í myndasíðunni okkar til að gera ættingjum og vinum auðveldara fyrir að fylgjast með fyrstu dögum og mánuðum barnsins. Þar eru núna að finna einhverjar myndir, meðal annars stærri útgáfu af myndunum frá því að mamma og pabbi voru hjá okkur. Það getur vel verið að við verðum duglegri að setja inn myndir heldur en að blogga og þá má alltaf sjá hérna til vinstri á síðunni ef að nýjar myndir eru komnar inn.

Lykilorðið inn á myndasíðuna er að sjálfsögðu heimabærinn minn, með öllum stöfum litlum og engum séríslenskum staf.

Mamma og pabbi í heimsókn

Related posts:

  1. Hvor er hvað ? Mamma og pabbi sögðu strax þegar þau sáu myndir af...
  2. Guðmundur Elí orðinn stóri frændi Kristinn bróðir og Salóme eignuðust litla stelpu í morgun. Hún...
  3. Gríslablogg Eins og sést myndunum sem fylgja með þessari færslu má...
  4. Hetjudáð bræðranna að vestan! Við Kristinn bróðir höfum í gegnum tíðina ekki verið þekktir...
  5. Nú er’að koma jól !! Nú get ég sagt að jólin séu að koma !...

Senda færslu í tölvupósti Senda færslu í tölvupósti

« « Gríslablogg   |    Forsíða     |    Þá hefur litla fjölskyldan stækkað um helming » »