« « Meðmæli: Ísenskur Bond á ferðinni ?   |    Forsíða     |    Húsnæðismál » »

vicky-cristina-barcelona_l1

Bíóferð í Angers

Senda færslu í tölvupósti Senda færslu í tölvupósti


Við hjónin skelltum okkur í bíó um síðustu helgi. Krakkar sem eru með mér í tungumálanáminu voru á leiðinni í bíó og drógu okkur með. Þessir krakkar, stelpa frá Nýja sjálandi og önnur frá Mexíkó ásamt frönskum kærasta mexíkanans, tala fína ensku, þannig að ég hef getað haldið uppi nokkuð eðlilegum samræðum við fleiri en Jóhönnu undanfarið. Sem er kærkomin breyting.

En allavegana, við skelltum okkur með þeim í bíó á föstudagskvöldi. Myndavalið hjá okkur réðist af sýningartíma, og talmáli. Völdum mynd með ensku tali ( sem er ekki mjög auðvelt að finna) og sem var sýnd um átta leytið að kvöldi. Enduðum á því að fara á einhverja nýja mynd eftir Woody Allen.

Ég hef vanalega ekkert verið sérlega hrifinn af Woody Allen myndum, en þessi mynd kom skemmtilega á óvart. Söguþráðurinn vægast sagt óvanalegur og skemmtilegur. Svo skemmir ekkert fyrir að hafa leikkonur eins og Penélope Cruz og Scarlett Johansson. Getum allavegana hiklaust mælt með þessari mynd. Alveg ljómandi fín afþreying.

Yfir og út,

Magnús


Related posts:

  1. Skyldi það takast í þetta skiptið ? Jæja! Eins og ég gaf fögur fyrirheit um í síðustu...

Senda færslu í tölvupósti Senda færslu í tölvupósti

« « Meðmæli: Ísenskur Bond á ferðinni ?   |    Forsíða     |    Húsnæðismál » »