« « Heimsókn og frönskupróf   |    Forsíða     |    Læknavísindi eru engin geimvísindi. » »

img_1535-960x1280

Gríslablogg

Senda færslu í tölvupósti Senda færslu í tölvupósti

Eins og sést myndunum sem fylgja með þessari færslu má aldeilis segja að nýjasti meðlimur fjölskyldunnar stækki og dafni eins og enginn sé morgundagurinn. Það er nokkuð ljóst að barnið hefur erft matarlystina frá móður sinni! Við fórum til læknisins okkar fyrir tveimur vikum þar sem okkur Grísla var skellt í vaxtarsónar þar sem kom í ljós, lækninum til mikillar undrunar, að barnið væri orðið u.þ.b. 2900gr að þyngd. Hérna í Frakklandi þykir þetta svo sannarlega ekki normal þyngd þegar 7 vikur eru eftir af meðgöngu svo doksi tilkynnti okkur að ef hann fengi einhverju að ráða þá fengi þetta blessaða barn ekki að hafa það huggulegt í vömbinni til 11. júlí heldur vill hann svæla það út eigi síðar en í lok júní. Að sjálfsögðu kom þetta okkur foreldrunum líka mjög svo á óvart þar sem ég er búin að vera mjög dugleg að ræða það við Grísling alla meðgönguna að hann eigi að vera lítill og nettur. Mér finnst uppreisnin í barninu byrja óþarflega snemma!

Þetta setur svo að sjálfsögðu allt úr skorðum hjá okkur, sérstaklega mér, þar sem ég á að vera í skólanum til 26. júní. Ég mátti fara inn á skrifstofu með sauðasvip og útskýra það að þar sem barnið mitt væri svo feitt væri frekar ólíklegt að ég gæti klárað önnina. Sem betur fer er starfsfólkið í skólanum einstaklega almennilegt og finnst nú ekki mikið mál að redda þessu einhvernveginn fyrir mig :-) Svo þurfum við sennilega að breyta flugmiðanum sem mamma var búin að kaupa út 9. júlí til að vera hjá okkur þegar krílið kæmi. Hún er orðin eins og flugfreyja, með tilbúna ferðatösku til að rjúka út á flugvöll ef eitthvað skyldi gerast.

Þar sem nú lítur út fyrir að við höfum 2-3 vikur í undirbúning þar til barnið fæðist en ekki 5 eins og upphaflegar áætlanir gerðu ráð fyrir ákváðum við að drífa okkur í að undirbúa heimilið aðeins fyrir komu krílisins (Lesist: Jóhanna lærir og dundar sér á meðan Magnús strendur á haus). Í gær skelltum við okkur í búð og versluðum nauðsynjar eins og sólhlíf á kerruna (aldrei hefði mér dottið það í hug heima!), nokkrar samfellur, snuddur og hitt og þetta smálegt. Í dag er svo Magnús búinn að setja saman barnarúmið og þvo og strauja öll föt og rúmföt sem til eru fyrir krílið.

Núna erum við bara farin að hlakka til að fá Einar og Gunnu til okkar á fimmtudaginn. Ætlum aldeilis að reyna að njóta tímans og gera eitthvað skemmtilegt þessa viku sem þau verða hjá okkur (þ.e.a.s. ef við endum ekki bara uppi á fæðingardeild). Það ætti allavega allt að vera orðið klárt svo Guðrún þurfi ekki að standa á haus í heimilisstörfum og undirbúningi :)

Setjum inn nýjar fréttir af þessu öllu saman um leið og þær berast ;-)

Related posts:

  1. Læknavísindi eru engin geimvísindi. Jæja það er greinilegt að við hjónin erum ekki þau...
  2. Gríslingur Þar sem það er laugardagur í dag ákvað ég að...
  3. Franskir páskar Gleðilega páska öll sömul. Það er nú meira hvað við...
  4. Fréttir Jæja þá, ætli það sé ekki best að fara að...
  5. Húsnæðismál Halló halló! Eins og einhverjir hafa eflaust frétt þá skelltum...

Senda færslu í tölvupósti Senda færslu í tölvupósti

« « Heimsókn og frönskupróf   |    Forsíða     |    Læknavísindi eru engin geimvísindi. » »