Jæja, þegar kvartanir eru farnar að berast í commentakerfinu um bloggleysi, verður maður víst að reyna að bregðast við.
Það hefur ýmislegt á daga okkar drifið frá því við blogguðum síðast. Um síðustu helgi, fékk Jóhanna svolítið að æfa sig í móðurhlutverkinu, þegar hún gekk fjórum fullorðnum karlmönnum í móðurstað. Bjarni Freyr, Andri og Kenneth komu til Parísar og gistu hjá okkur nokkrar nætur. Eftir það ævintýri, verður sennilega ekki mikið mál að hugsa um grísling. Bjarni kom fyrstur á miðvikudegi og var hann að koma til Parísar í fyrsta skipti. Að sjálfsögðu var því tekinn hörku túristadagur þar sem helstu minnismerki Parísarborgar voru skoðuð.
Andri og Kenneth komu svo á föstudagsmorgninum og voru þeir allir hjá okkur fram á þriðjudag. Þar sem við fluttum ekki til Parísar fyrr en í Janúar þegar Jóhanna var orðin ólétt, var þetta fyrsta tækifærið mitt til að kynnast aðeins næturlífi Parísarborgar og að sjálfsögðu var það ágætlega nýtt. Á föstudagskvöldið fórum við á Íslenskt kvöld í París, sem var skipulagt af frönskum strák sem kom til Íslands í fyrra sumar. Kvöldið bar það skemmtilega heiti “Helvítis fokking fokk” og mátti sjá tilkynningar víða um Parísarborg. Við félagarnir mættum að sjálfsögðu með það besta sem land okkar hefur uppá að bjóða, íslenskan hákarl, sem virtist ótrúlegt en satt ekkert fara allt of vel í partýgesti. Það varð hins vegar til þess að fljótt vissu allir á staðnum hverjir við vorum og urðum við þekktir sem “strákarnir sem komu með vondu lyktina”. Það var vel við hæfi að það fyrsta sem fyrir augu bar þegar við löbbuðum inn á barinn, var Bolungarvík þar sem verið var að sýna Nóa albínóa á tjaldi og spila Sigur rós undir. Þarna hittum við líka franska stelpu sem talaði nánast lítalausa íslensku, þrátt fyrir að hafa aðeins dvalið á Íslandi í þrjár vikur. Greinilegt að íslenskukennslan í Sorbonne er í góðu lagi.
Eldsnemma morguninn eftir þurfti ég svo að taka lokaprófið mitt í frönsku frá Sorbonne. Gekk það bara nokkuð vel og er það klárlega hákarlsátinu frá kvöldinu áður að þakka. Þetta var snilddarferð í alla staði. Fórum meðal annars upp í Montparnasse turninn, skoðuðum okkur um í Montmartre og að sjálfsögðu drógum við byggingaverkfræðinginn Kenneth upp í Eiffelturninn labbandi. Núna bíðum við bara spennt eftir næstu heimsókn, en mamma og pabbi eru væntanleg 11. júní.
Hægt er að sjá stærri útgáfu á myndunum hérna fyrir neðan á myndasíðunni.
- Svona er Eiffel málaður að utan. Tekið af toppnum
- Upp á Montparnasse turninum með Eiffel á milli sín
- Dressman auglýsing ?
- Algeng sjón í ferðinni
- Félagarnir við rauðu mylluna
- Kenneth við Sacre Coeur
- Andri við Sacre Coeur
- Bjarni við Sacre Coeur
- Í tröppunum fyrir framan Sacre coeur
- Menntamálaráðherra?
- “Helvítis fokking fokk”
- Skipuleggjandinn Jerome, tekur við Hákarlinum
- Bjarni og Magnús undir Eiffel turninum
- Bjarni við Eiffel turninn
- Bjarni við Louvre
Related posts:
- Afmæli og Þýskalandsferð Síðustu dagar eru aldeilis búnir að vera viðburðaríkir hjá okkur...
- Hetjudáð bræðranna að vestan! Við Kristinn bróðir höfum í gegnum tíðina ekki verið þekktir...
- Nýjar myndir, heimsókn og Jóhanna Renault gella Síðustu dagar eru búnir að vera nokkuð góðir hjá okkur...
- Lyon var það heillin! Alltaf endar það með því að mánuðir líði á milli...
- Jólamarkaður Í gær ákváðum við að skella okkur á fyrsta dag...



















Ég vil fá að sjá fleiri myndir af sætu sætu bumbulínunni! Þú þarft að vera duglegri að mynda hana Magnús minn.