Við hjónin vorum rétt í þessu að horfa á Silfur Egils. Í öllu þessu krepputali er alltaf verið að tala um þá sem minna mega sín. Einn hópurinn sem er alltaf nefndur í því samhengi eru íslenskir námsmenn erlendis. Það er því búið að flokka okkur sem “minni máttar”. Við erum orðinn hluti af minnihlutahópi sem allir eiga að vorkenna. Þrátt fyrir þetta og þrátt fyrir það að við séum 2 að lifa á einföldum námslánum, þá upplifum við okkur ekki sem minni máttar. Við höfum það ekki svo slæmt hérna í Frakklandinu. Auðvitað þurfum við að hugsa um hverja evru og erum þar af leiðandi orðin einstaklega hagsýn og algjörir snilingar í að búa til súpu úr hvaða afgangs grænmeti sem fæst á niðursettu verði á markaðnum. En ég efast um að það sé eitthvað öðruvísi hjá þeim sem eru í háskólanámi heima, nema að sjálfsögðu að þeir hafa ekki aðgang að hræódýru grænmeti eins og við.
Að sjálfsögðu er þetta ekki ídeal staða en það þýðir ekkert að væla yfir því en í það minnsta er rauðvín og bjór ekki að hækka upp úr öllu valdi hér eins og heima. Við getum alltaf lallað út í búð, keypt ágætis rauðvínsflösku á 1-2 evrur og drekkt sorgum okkar
Related posts:
- Lyon var það heillin! Alltaf endar það með því að mánuðir líði á milli...
- Next up: Croatia Það er ekki hægt að segja annað en að “strákarnir...
- Sverrir og skólamál Jæja, þá er ég orðinn stoltur nemandi í ekki ómerkari...
- Heimsókn og frönskupróf Jæja, þegar kvartanir eru farnar að berast í commentakerfinu um...
- Til hamingju með afmælið Kenneth! Góðvinur minn Kenneth Breiðfjörð á afmæli í dag. Afmælisdagur Kenneths...



Við eigum notlega óskaplega bágt….
Og ég má ekki einu sinni drekkja mínum miklu sorgum í rauðvíni, ég hlýt að eiga ennþá meira bágt. Það eina glataða hérna núna er að við vorum ekki nógu sniðug og kíktum í heimsókn snemma í haust, meðan ekkert var að gerast í skólanum! Nú er allt á floti – frekar glatað ástand.
Þetta er lítið örðuvisi hérna fyrir námsmenn. Nema jú við eigum ekki efni á rauðvini og hvað þá ostum!;)
Knús frá okkur Kristni :*
p.s Þú kannski sendir Gautanum e-mail um það hvert þið viljið fá jólapakkann:D