« « Franskir páskar   |    Forsíða     |    Heimsókn og frönskupróf » »

bumbur

Afmæli og Þýskalandsferð

Senda færslu í tölvupósti Senda færslu í tölvupósti

Síðustu dagar eru aldeilis búnir að vera viðburðaríkir hjá okkur þannig að það er kominn tími á almennilega bloggfærslu.

Um síðustu helgi komu Eva og Toni í heimsókn til okkar frá Köln. Toni þurfti að vinna hér í París og að sjálfsögðu nýttum við tækifærið til að hafa það huggulegt saman um helgina. Ekki skemmdi heldur fyrir að fá akkúrat heimsókn um afmælishelgi húsbóndans svo þessu var slegið upp í allsherjar partý :-) Veðrið var reyndar frekar drungalegt svo við dunduðum okkur við að spila og borða góðan mat.

Á sunnudaginn ákváðum við að skella okkur bara með til Köln þar sem við vorum nú einu sinni í fríi og hafa það huggulegt í góða veðrinu í Þýskalandi. Buðum samt Hafdísi og Kristjáni í afmæliskaffi áður en við fórum og fengum ljómandi góðar skonsur og súkkulaðiköku í tilefni dagsins.  Seinnipartinn brunuðum við svo af stað til Þýskalands.

Köln er ótrúlega skemmtileg og sjarmerandi borg og að sjálfsögðu skemmdi glaðasólskin og ísát ekki fyrir. Við Magnús og Eva röltum um bæinn og skoðuðum okkur um í góða veðrinu. Við skoðuðum kirkjuna, gamla bæinn og miðbæinn og fórum í smá pikknikk á ströndinni hjá Rín. Við komumst að því að tvær bumbulínur fara hreint ekki svo hratt yfir í 25 stiga hita svo þetta tók allt sinn tíma;-) en það er svosem engin ástæða til að vera á strunsinu þegar maður er í fríi.

bumbur

Áður en við yfirgáfum borgina fórum við svo á tvo snilldarstaði, á þriðjudagsmorguninn fórum við í lakkrísbúðina  þar sem við Magnús fórum aðeins yfirum. Þessi snilldarverslun flytur inn lakkrís frá hinum ýmsu stöðum og þar á meðal Íslandi. Frekar skondið að geta keypt sér tromp, ópal og draum í Þýskalandi. Ferðin var allavega vel nýtt og við byrgðum okkur upp af sterkum brjóstsykum.

lakkrisbud

Eftir góðan göngutúr um bæinn fórum við svo að leita okkur að stað til að  borða á. Leituðum reyndar heillengi og héldum að við værum komin í ruglið þegar við duttum inn á hinn fullkomna stað sem heitir því skemmtilega nafni Magnus! Við gátum að sjálfsögðu ekki annað en borðað þar og maturinn var bara alls ekki slæmur ;-)

magnus

Eftir tvo snilldardaga í Köln fórum við svo á puttanum(fundum far á netinu) niður til Darmstadt að heimsækja Hildi, Guðna og Ingibjörgu Steinunni. Það var nú alveg kominn tími á Darmstadt heimsókn þar sem við höfðum ekki hitt þau síðan síðasta sumar og svo langaði okkur að sjálfsögðu ótrúlega að hitta Ingibjörgu Steinunni og fá að æfa okkur smá;-) Þegar við mættum var að sjálfsögðu búið að undirbúa veislu, inverski maturinn hjá Guðna klikkar aldrei, og við sátum og borðuðum og spjölluðum langt fram á kvöld.

frisbifelagar

Á miðvikudag fórum við svo í göngutúr um bæinn, strákarnir fóru í frisbí, við fengum heimabakaðar lummur og dáðumst að sjálfsögðu að litla krúttinu. Ég er ekki frá því að okkur hlakki ennþá meira til að fá Grísla í heiminn eftir að hafa knúsað lilluna svoldið:)

magnusogingibjorg

Klukkan 11 í gærkvöldi fórum við svo að hitta farið okkar til baka. Fengum að sitja í hjá sendibílstjóra á leiðinni til Parísar sem kunni ekki neitt að keyra svo Magnús greyið var að fara yfirum af stressi á meðan ég svaf :) Á landamærunum var svo sem betur fer skipt um bílstjóra svo hann gat slakað aðeins á. Við skriðum svo heim rúmlega 6 í morgun, öll lurkum lamin eftir ferðina og vorum fljót að koma okkur upp í ból.

Related posts:

  1. Jólamarkaður Í gær ákváðum við að skella okkur á fyrsta dag...
  2. Heimsókn og frönskupróf Jæja, þegar kvartanir eru farnar að berast í commentakerfinu um...
  3. Hetjudáð bræðranna að vestan! Við Kristinn bróðir höfum í gegnum tíðina ekki verið þekktir...
  4. Lyon var það heillin! Alltaf endar það með því að mánuðir líði á milli...
  5. Nýjar myndir, heimsókn og Jóhanna Renault gella Síðustu dagar eru búnir að vera nokkuð góðir hjá okkur...

Senda færslu í tölvupósti Senda færslu í tölvupósti

« « Franskir páskar   |    Forsíða     |    Heimsókn og frönskupróf » »