« « Lyon var það heillin!   |    Forsíða     |    Ný video af GEM » »

IMG_3722 (800x600)

Hetjudáð bræðranna að vestan!

Senda færslu í tölvupósti Senda færslu í tölvupósti

Við Kristinn bróðir höfum í gegnum tíðina ekki verið þekktir fyrir að hafa stórt hjarta þegar kemur að skorkvikindum. Sérstaklega ef að þessar skeppnur fljúga og eru í skagalitunum, þá höfum við átt það til að kveina eins og smástelpur og hlaupa eins og fætur toga. Þið getið því rétt ímyndað ykkur hvernig okkur varð við um daginn,þegar þetta kvikindi datt inn um gluggann hjá okkur.”



Eldri bróðirinn þurfti heldur betur að bíta í tunguna á sér og taka á honum stóra sínum þegar hann setti sig í bráða lífshættu við að bregða glasinu yfir þessa skeppnu.

Eftir að hafa ráðfært okkur við skordýrafræðingana í fjölskyldunni, Jónatan bróðir og Hauk Sindra, þá komumst við að þeirri niðurstöðu að þetta er með stærstu skorkvikindum sem finnast og heitir hún stag beetle. Hún dregur nafn sitt af þessum hrikalegu bitörmum, sem þykja minna á horn hjartardýra.

Hér má lesa um þenna hroðbjóð á wikipedia

Related posts:

  1. Afmæli og Þýskalandsferð Síðustu dagar eru aldeilis búnir að vera viðburðaríkir hjá okkur...
  2. Lyon var það heillin! Alltaf endar það með því að mánuðir líði á milli...
  3. Erum við minni máttar ? Við hjónin vorum rétt í þessu að horfa á Silfur...
  4. Hvað ætla ég að verða þegar ég verð stór ? Þessi spurning hefur leitað ákaft á mig síðustu daga. Ég...
  5. Er ekki kominn tími á smá blogg ? Jæja, ég geri fastlega ráð fyrir að okkar dyggu lesendur...

Senda færslu í tölvupósti Senda færslu í tölvupósti

« « Lyon var það heillin!   |    Forsíða     |    Ný video af GEM » »