Alltaf endar það með því að mánuðir líði á milli bloggfærslna hjá okkur. Hins vegar er alveg nóg að frétta.
Síðustu mánuðir hafa verið heldur betur viðburðaríkir. Margir komið í heimsókn og erum við nánast búin að vera með gesti samfleytt síðan uppúr miðjum apríl! Ein heimsókn stóð samt klárlega uppúr hjá okkur, en það var þegar Kristinn bróðir og Salóme komu með Kötlu Guðrúnu sína, en við höfðum aldrei hitt hana síðan hún fæddist í byrjun febrúar. En það var líka gaman að fá hina gestina, Gumma, Sóley, Unni og Halldór, Andra, Berglindi Höllu, Jón Elí og Erlu og síðast en ekki síst Evu systur og fjölskyldu.
Jóhanna er á kafi ennþá í vinnu þó að loksins sé farið að sjá fyrir endan á þessu hjá henni. Hún vinnur hjá Renault út júlí og á svo að verja lokaverkefnið sitt í skólanum 26. ágúst.
Ég er búinn að eyða síðustu mánuðum í að sækja um hina ýmsustu skóla og var á endanum samþykktur inn í nám m.a. í Lyon, France og Cannes. Við erum búin að ákveða að flytja til Lyon í næsta mánuði þar sem ég byrja í MBA námi í EMLYON 30. ágúst. Það er því í nógu að snúast að undirbúa flutninga, finna íbúð í Lyon og fyrir verkfræðinginn að finna sér vinnu.
Það er frá mörgu öðru að segja, en ég vil ekki skella því öllu í eina langloku-færslu ef að ég skyldi nenna að blogga eitthvað meira næstu daga.
Related posts:
- Afmæli og Þýskalandsferð Síðustu dagar eru aldeilis búnir að vera viðburðaríkir hjá okkur...
- Læknavísindi eru engin geimvísindi. Jæja það er greinilegt að við hjónin erum ekki þau...
- Hvað ætla ég að verða þegar ég verð stór ? Þessi spurning hefur leitað ákaft á mig síðustu daga. Ég...
- Hetjudáð bræðranna að vestan! Við Kristinn bróðir höfum í gegnum tíðina ekki verið þekktir...
- Er ekki kominn tími á smá blogg ? Jæja, ég geri fastlega ráð fyrir að okkar dyggu lesendur...


