Gleðilega páska öll sömul.
Það er nú meira hvað við hjónin höfum verið léleg við að blogga upp á síðkastið. Stefnum að því að fara að verða duglegri í þessu. Af okkur er allt það besta að frétta. Hjá okkur er komið algjört sumar veður. Nokkuð magnað að vera að upplifa vor svona í fyrsta skipti. Heima er eiginlega bara vetur og sumar. En vorveðrið hérna er búið að vera frábært, 15 – 20°C upp á hvern einasta dag. Þrátt fyrir gott veður er ekki laust við að ég hafi fundið fyrir smá heimþrá síðustu daga. Hjálpar ekki til að heyra frá mömmu og pabba að þau hafi verið á skíðum á svo til hverjum einasta degi.
Þetta hafa að flestu leyti verið nokkuð óhefðbundnir páskar. Frökkunum finnst engin ástæða til þess að gefa frí á dánardegi frelsarans og vorum við því bæði í skólanum á skírdag og föstudaginn langa. Ég er reyndar svo kominn í 2ja vikna frí frá skólanum, en Jóhanna er að hamast við að læra fyrir þrjú próf sem hún þarf að taka í þessari viku. Í næstu viku fáum við svo að vera í fríi saman. Þessir páskar voru líka nokkuð óhefðbundnir svona matarlega séð. Hvorugt okkar gat hugsað okkur að borða páskalamb í blíðunni og gerðum við okkur því úrvals tælenska fiskisúpu í páskamatinn og höfðum við hana í sterkari kantinum (það lá við að hún nálgaðist tom yum súpuna þína í Tælandi Guðni!).
Ég enda þetta í bili með því að skella með einni mynd af gríslingi. Þessi 3D sónarmynd var tekin í síðustu viku.
Related posts:
- Gríslingur Þar sem það er laugardagur í dag ákvað ég að...
- Tívolí og frönskunám Jæja, þá virðist sem frönsku dugnaðarforkarnir sem vinna í skólanum...
- Gríslablogg Eins og sést myndunum sem fylgja með þessari færslu má...
- Hvað ætla ég að verða þegar ég verð stór ? Þessi spurning hefur leitað ákaft á mig síðustu daga. Ég...
- Læknavísindi eru engin geimvísindi. Jæja það er greinilegt að við hjónin erum ekki þau...




Úff tom yum súpan í Tælandi gleymist seint. En ég er alltaf að heyra frá einhverjum fiskisúputilraunum hjá ykkur, ég verð að fá að smakka við tækifæri
Hæ frændi og til hamngju með daginn í gær.
Ég mundi vel eftir honum þar sem ég sat með tærnar upp í loft á hjólabát og fjarri netsambandi….;)
High five fyrir vorinu á meginlandinu!
Vonandi hafðirðu það gott í gær
kv,
Halla Hrönn
Ég fór inn á facebook síðuna þína Magnús og sá þar link á þessa síðu. Ég mátti til með að óska ykkur til hamingju með grísling
Gangi ykkur sem allra best á meðgöngunni og í skólanum.
Bestu kveðjur,
Halldóra.
Hae hae, vildi bara takka fyrir helgina. Var vodalega notalegt hjá ykkur og vonanadi látum vid ekki lída svo langt tar til vid hittustum aftur…
Vona ad ferdin hafi gengid vel í nótt.
Hafid tad sem best.
Bestu kvedjur á ykkur trjú frá okkur trem