Jæja þá er komið að appelsínugulri spurningu.
Spurt er um körfuboltamann. Körfuboltamaður þessi er uppruninn frá Kongó og kom upphaflega til Bandaríkjanna til að verða læknir og fékk til þess styrk. Þegar hann kom í háskólann var körfuboltaþjálfarinn ekki lengi að kippa honum á æfingu, enda er maðurinn 2,18 m að hæð. Með háskólaliðinu sló hann öll háskólamet í sinni sérgrein innan körfuboltans og varð valdur að góðu gengi háskólaliðsins ásamt félaga sínum Alonzo Mourning. Seinna sló hann hinum merka Kareem Abdul-Jabbar ref fyrir rass, þegar hann varð sá annar besti í sögunni í þessarri sérgrein sinni frá upphafi NBA deildarinnar.
Maður þessi talaði nánast enga ensku þegar hann kom til Bandaríkjanna, en talar nú 9 tungumál, þar á meðal ensku frönsku spænsku og portúgölsku.
Körfuboltamaður þessi hefur í seinni tíð lagt mikið upp úr hjálparstarfi og er meðal annars til spítali sem nefndur er eftir honum. Sérstaklega hefur hann verið öflugur í hjálparstarfi í heimalandi sínu, Kongó.
Þegar hann hætti leik í NBA, var hann elsti spilandi maður í deildinni.
Hvað heitir þessi maður fullu nafni og með hvaða liði hóf hann feril sinn í NBA deildinni ?
Related posts:
- Föstudagsgetraunin Betra er seint… Að þessu sinni er spurningin græn. Spurt...
- Föstudagsgetraunin – svar Jæja svar við fyrstu föstudagsgetrauninni kom óvenju fljótt. Hildur og...
- Föstudagsgetraunin Þá er komið að föstudagsgetrauninni. Í þetta skiptið er spurningin...
- Föstudagsgetraunin Jæja þá er komið að föstudagsgetrauninni. Nú er það bleik...
- Föstudagsgetraunin Jæja þá er það enn einn dagskrárliðurinn, föstudagsgetraunin. Lagðar verða...



Þetta mun vera leikmaðurinn Dikembe Mutombo, sem hóf feril sinn með Denver Nuggets.
Guðni og Hildur þið eruð nálægt því, en fáið ekki rétt fyrir af tveimur ástæðum. Eva og Binni voru búin að commenta á facebook, var eitthvað vesen á commentakerfinu í gær og þau voru með fullt nafn sem vantar hjá ykkur.
Hann heitir eins og Eva var með réttilega: Dikembe Mutombo Mpolondo Mukamba Jean-Jacques Wamutombo og hann hóf ferill sinn með Denver Nuggets 1991.
Er ekkert að frétta af ykkur gott fólk??