Þó það sé að sjálfsögðu fullt af kossaflensi og tómri hamingju á heimilinu er það ekki það kossaflens sem ég á við í titlinum á þessari færslu. Nei, ég er að tala um kossaflensið í blessuðum frökkunum. Eins og flestir hafa heyrt um, séð í bíómyndum eða orðið vitni að sjálfir þá heilsast frakkar vanalega með kossi (einum á hvora kinn hér í París).
Þegar ég flutti fyrst til Frakklands í byrjun síðasta árs átti ég óskaplega bágt með þetta enda hreint ekki vön svona almennu kossaflensi
Frakkar kynna sig með kossum, heilsast með kossum og kveðjast svo með kossum líka. Ég hélt að þetta væri nú bara svona þegar maður væri í stuði en nei, nei, það kyssast allir þegar þeir mæta í skóla eða vinnu á morgnanna. Alveg ótrúlegt hvað þeir geta eytt miklum tíma í þessa vitleysu!
En það er ótrúlegt hvað maður getur vanist ólíkum siðum á skömmum tíma og núorðið er ég farin að kyssa fólk um allan bæ, vini og kunningja jafnt sem ókunnuga. Ég er meira að segja ekki frá því að fólki heima á Íslandi hafi fundist ég stórskrítin þegar ég vatt mér að því og skellti kossi á hvora kinn, vona samt að enginn hafi tekið þetta mjög nærri sér
En nú er svo komið að ég er orðin svo vön þessu að ég er bara hæstánægð með það að kossunum sem ég fæ þegar ég mæti í skólann á morgnanna fer fjölgandi. Það þýðir allavega að einhverjir vilji tala við mig…
Related posts:
- Kominn aftur til Frakklands með bloggsíðu í farteskinu Jæja... þá er maður loksins að láta undan pressunni. VIð...



Híhí, þetta minnir mig bara á kvöðina þegar maður mætir seinastur í fjölskylduboð og þarf að ganga hringinn og kyssa alla!!!
Þú mátt alveg geyma svo sem tvo fyrir mig þegar við hittumst næst, hvenær sem það verður.
haha já! fyrir glerharðann íslending er þetta eins og hræðileg og óvænt innrás inní manns personal space til að byrja með, og maður fær kjánahroll í hvert skipti, kyssandi mann og annan….líka þá sem manni finnast ekkert skemmtilegir!
Ég man þegar að ég flutti til lúx og var að kynnast fólki frá lúx, sérstaklega strákum þá fór ég alltaf svo hjá mér þegar það var verið að kyssa mig svona, roðnaði alveg.. Maður þekkir ekkert svona og er ekkert vanur að fá kossa frá hverjum sem er
Lúxararnir gera alltaf 3.
Knús á ykkur frá okkur Kristni
Haha já Frakkar hafa sko ekki hugmynd um hvað personal space er! En ég er allavega fegin að hér eru það bara tveir kossar, þetta fer held ég alveg upp í fjóra á sumum svæðum…