Þar sem það er laugardagur í dag ákvað ég að reyna að flikka aðeins upp á útlitið (lesist: setja á mig maskara) og vera svoldið sæt. Af þessu hátíðlega tilefni fannst mér alveg upplagt að smella í eina, tvær myndir til að róa háværar kvartanir. Það gerðist nefnilega í síðustu viku að það fór allt í einu að sjást svolítið í Grísling. Hann var farinn að valda mér töluverðum áhyggjum með því að neita að láta sjá sig og ég hélt að ég þyrfti að þola það að líta bara út fyrir að vera þybbin fram á sumar…
Planið var að láta eins og eina sónarmynd fylgja með en það lítur út fyrir að þetta barn hafi erft þrjóskuna frá móður-ömmu sinni og vilji bara alls ekki láta mynda sig. Vonum bara að hann verði samvinnuþýðari í næsta sónar og brosi svoldið framan í okkur
Allavega, hér er myndin sem er tekin í dag og ég er komin sléttar 21 viku. Vona að þetta gleðji þær sem hæst hafa kvartað (Hildi og frænkustóðið hans Magnúsar)
Related posts:
- Franskir páskar Gleðilega páska öll sömul. Það er nú meira hvað við...
- Gríslablogg Eins og sést myndunum sem fylgja með þessari færslu má...
- Kominn aftur til Frakklands með bloggsíðu í farteskinu Jæja... þá er maður loksins að láta undan pressunni. VIð...
- Læknavísindi eru engin geimvísindi. Jæja það er greinilegt að við hjónin erum ekki þau...
- kominn tími á blogg Jæja… það verður varla hjá því komist mikið lengur að...




Híhí, mikið var! Ert auðvitað ótrúlega sæt og fín elskan!! Og þú getur ekkert sagt, varst einnig ein af þeim sem röflaðir í mér fyrir svona 20 vikum síðan.
Haha ég veit! En það var bara hreint ekki sami hluturinn
Ji hvað þú ert sæt með svona bumbu,
Hvernig brögðuðust svo bollurnar í dag?
Þær voru sko alltof góðar! Borðaði svo yfir mig að Magnús þurfti að taka af mér diskinn svo ég mundi ekki enda á slysó
Vá hvað þú ert sæt með svona fína kúlu
Hlakka til að sjá skvís
Birna
Hæ hæ,
Gullfalleg bumbulína:)
Knús frá köben
Heeeey jiiiii hvað þú ert sæt!
Frænkustóðið vill svo fá myndir reglulega
Kv,
Halla
vá hvað þú ert flott!!! er ekki frá því að ég sakni þess pínu að vera með bumbu, ótrúlega skrítið að “losna” svona við hana…en vel þess virði!!
knús og kossar frá familíunni í kópavogi
Elsku dúllan okkar! Söknuðum þess að þú skyldir ekki líta við á 17. á meðan dvöl í Rvík stóð.. en.. við vonumst til þess að sjá þig næst!! Lofaru?????