« « Sverrir og skólamál   |    Forsíða     |    Gríslingur » »

blogging_101-1

kominn tími á blogg

Senda færslu í tölvupósti Senda færslu í tölvupósti

Jæja… það verður varla hjá því komist mikið lengur að skrifa einhverjar fréttir af okkur.

Það er svo sem ekkert stórvægilegt að frétta. Ég er byrjaður í frönsku í Svartastkóla og feta þannig í fótspor ekki ómerkilegra manna en Sæmunds fróða. Franskan er hörku púl. Er fimm daga vikunnar í fimm tíma á dag. Þar af eru fjórir tímar í málfræði og 1 klukkutími í phonetique, sem var frekar skrítið og fyndið til að byrja með. Þeir tímar virka þannig að þú setur upp heyrnatól með míkrafón, svona svipað og flugmenn notast við. Svo les kennarinn upp setningar eða orð, sem þú svo endurtekur inn á band. Svo hlustar maður á upptöku af kennaranum og sjálfum sér endurtaka, áður en ferlið svo byrjar uppá nýtt. Í fyrsta tímanum fannst mér ég vera að hlusta á pabba eða bræður mína frekar en sjálfan mig, en þetta venst svo sem ágætlega.

Bekkjarfélagarnir eru bara nokkuð hressir. Fimm sem tala ensku að móðurmáli, frá Kanada, Englandi og Bandaríkjunum, 3 svíar, 1 Finni og svo fólk frá hinum ýmsustu löndum. Það kom mér skemmtilega á óvart að þetta eru ekki eingöngu krakkar sem voru að klára menntaskóla, heldur leynast inn á milli aðilar sem eru jafnvel eldri en ég. Þarna eru meðal annars lögfræðingur frá Bretlandi, Arkitekt frá Ástralíu, Endurskoðandi frá Venezuela og neðansjávar fornleifafræðingur frá Kanada ( já það er til). Ætli sé ekki hægt að gera eitthvað við þessa blöndu ?

Í næstu viku er svo Jóhanna í fríi í sínum skóla og hún fer heim til Íslands á mánudag og verður í viku. Ég fæ því að kynnast því sem hún upplifði allan síðasta vetur; að vera einn í París ! En ef að einhver á leið til meginlandsins í næstu viku eða um næstu helgi þá býð ég fría gistingu!

Yfir og út
Magnús

Related posts:

  1. Er ekki kominn tími á smá blogg ? Jæja, ég geri fastlega ráð fyrir að okkar dyggu lesendur...
  2. Kominn aftur til Frakklands með bloggsíðu í farteskinu Jæja... þá er maður loksins að láta undan pressunni. VIð...
  3. Franskir páskar Gleðilega páska öll sömul. Það er nú meira hvað við...
  4. Húsnæðismál Halló halló! Eins og einhverjir hafa eflaust frétt þá skelltum...
  5. Nú er’að koma jól !! Nú get ég sagt að jólin séu að koma !...

Senda færslu í tölvupósti Senda færslu í tölvupósti

« « Sverrir og skólamál   |    Forsíða     |    Gríslingur » »