« « Hvað ætla ég að verða þegar ég verð stór ?   |    Forsíða     |    kominn tími á blogg » »

Afmælisbarn dagsins

Sverrir og skólamál

Senda færslu í tölvupósti Senda færslu í tölvupósti

Jæja, þá er ég orðinn stoltur nemandi í ekki ómerkari skóla en svartaskóla. Fórum og gengum frá skráningunni minni í gær og fer ég í próf á eftir þar sem ákvarðað verður hvaða erfiðleikastig þeri setja mig í í frönskunáminu. Í gær voru franskir lestarstarfsmenn í verkfalli sem kom sér eiginlega bara vel. Að vísu vorum við mun lengur að koma okkur á milli staða en vanalega og enduðum á því að labba frá París og heim í gærkvöldi, en fólk virtist almennt bara halda sig heima. Þannig að biðraðirnar voru óvanalega litlar miðað við venjubundnar franskar biðraðir.

En yfir í afmælisbarn dagsins.

Meistari Sverrir Bollason á afmæli í dag. Við Sverrir kynntumst fyrst í kórnum í M.H. og hittumst svo aftur í verkfræðinni í háskólanum.

Innilega til hamingju með daginn meistari.

Related posts:

  1. Kominn aftur til Frakklands með bloggsíðu í farteskinu Jæja... þá er maður loksins að láta undan pressunni. VIð...

Senda færslu í tölvupósti Senda færslu í tölvupósti

« « Hvað ætla ég að verða þegar ég verð stór ?   |    Forsíða     |    kominn tími á blogg » »