« « Föstudagsgetraunin   |    Forsíða     |    Föstudagsgetraunin » »

15892_Mont saint michel (640x480)

Föstudagsgetraunin – svar

Senda færslu í tölvupósti Senda færslu í tölvupósti

Jæja svar við fyrstu föstudagsgetrauninni kom óvenju fljótt. Hildur og Guðni voru með þetta, svarið er Le mont Saint Michel sem er í Normandy.

Þegar ég flutti til Frakklands, í september 2008, þá bjó Jóhanna í Brest á Bretagne skaganum og var ég þar með henni síðustu vikuna. Þar myndi ég ekki vilja búa þó ég fengi borgað fyrir það. Bærinn eyðilagðist allur í seinna stríðinu og byggðu kanarnir hann svo upp upp á nýtt. Öll hús eru ljót og kassalaga og veðurfarið er frekar leiðinlegt. Alltaf rok og rigning.

En þegar við fórum frá Brest, fluttum við til Angers, sem var öllu skárri, en Angers er gamall og fallegur kastalabær. Þegar við fluttum, þá leigðum við bílaleigubíl og keyrðum meðfram Norðurströnd Bretagne skagans og heimsóttum meðal annars Mt. Saint Michel, sem er að ég held einn flottasti ferðamannastaður sem ég hef komið á.

Þegar við vorum á leiðinni að fjallinu, þá keyrðum við í gegnum marga franska smábæi, meðal annars Saint Malo sem er gífurlega fallegur bær. Í Saint Malo hafa einhver íslensk skip verið smíðuð, meðal annars Dagrúnin, sem E.G. gerði út, held ég alveg örugglega.

Á þessu ferðalagi okkar rákumst við líka á þetta skilti, sem varð til þess að ég snarhemlaði og sneri við.

Við mælum hiklaust með  því að skreppa til Frakklands og taka rúnt um þetta svæði. Mont Saint Michel er hið minnsta  klárlega þess virði.

Related posts:

  1. Föstudagsgetraunin Jæja þá er komið að appelsínugulri spurningu. Spurt er um...
  2. Föstudagsgetraunin Jæja þá er það enn einn dagskrárliðurinn, föstudagsgetraunin. Lagðar verða...
  3. Föstudagsgetraunin Þá er komið að föstudagsgetrauninni. Í þetta skiptið er spurningin...
  4. Föstudagsgetraunin Jæja þá er komið að föstudagsgetrauninni. Nú er það bleik...
  5. Föstudagsgetraunin Þó ég hafi ekki verið duglegur að blogga undanfarið, klikka...

Senda færslu í tölvupósti Senda færslu í tölvupósti

« « Föstudagsgetraunin   |    Forsíða     |    Föstudagsgetraunin » »