Þessi spurning hefur leitað ákaft á mig síðustu daga. Ég er semsagt búinn að taka þá ákvörðun að fara í mastersnám hérna úti næsta haust. Byrja því í sama pakka og Jóhanna var í síðasta vetur 10. febrúar og fer í fullt tungumálanám í Sorbonne. Hef svo verið að skoða skóla hérna úti fyrir haustið. Ég held að það hafi verið auðveldara að mennta sig fyrir 50 árum síðan þegar minna var í boði. Ég hef verið að sveiflast á milli mastersnáms í Verkfræði, Hagfræði, viðskiptafræði, frumkvöðlafræðum, MBA, MIB, verkefnastjórnun og hvað þetta heitir allt saman. Á samt frekar erfitt með að ákveða mig. Ætli ég endi bara ekki á því að fara í nám í vínræktun og endi sem vínbóndi í Frakklandi ?
Jóhanna er byrjuð í skólanum á fullu. Byrjaði á mánudaginn í síðustu viku. Áttuðum okkur á því þá að það var í fyrsta skipti síðan 17.desember sem við vorum aðskilin í meira en korter! Ótrúlegt að við skulum ekki vera komin með leið á hvort öðru. En það þýðir að ég er aftur orðinn heimavinnandi húsfaðir í fullu starfi. Það hefur reyndar verið fullt starf þessa síðustu daga að vera á refresh takkanum á mbl.is Gott ef ég er bara ekki farinn að hlakka til að byrja í skólanum.
Að lokum, þá er hérna alveg mögnuð ljósmynd. Vinkona tengdamömmu tók hana og setti hana inn á facebook, þaðan sem ég stal henni. hugtakið ef þú smælar framan í heiminn fær svolítið nýja merkingu…
Related posts:
- Lyon var það heillin! Alltaf endar það með því að mánuðir líði á milli...
- Kominn aftur til Frakklands með bloggsíðu í farteskinu Jæja... þá er maður loksins að láta undan pressunni. VIð...
- Hvor er hvað ? Mamma og pabbi sögðu strax þegar þau sáu myndir af...
- Tívolí og frönskunám Jæja, þá virðist sem frönsku dugnaðarforkarnir sem vinna í skólanum...
- Er ekki kominn tími á smá blogg ? Jæja, ég geri fastlega ráð fyrir að okkar dyggu lesendur...




Hæ elsku fallegu hjón,,, haldið áfram að vera svona dugleg að blogga, gaman að fylgjast með ykkur.
knús Ragnhildur frænka