« « Meðmæli: Perpetuum Jazzile   |    Forsíða     |    Föstudagsgetraunin – svar » »

Fostudagsspurningin

Föstudagsgetraunin

Senda færslu í tölvupósti Senda færslu í tölvupósti

Jæja þá er það enn einn dagskrárliðurinn, föstudagsgetraunin. Lagðar verða fram spurningar með Trivial Pursuit sniði. Það er, við byrjum á Blárri spurningu (landafræði) og færum okkur svo yfir í bleika næsta föstudag og svo koll af kolli. Við spilum í sex vikna lotum (ein litaumferð) og sigurvegari hverrar umferðar á inni pylsu og kók hjá undirrituðum.

Þá er það fyrsta spurningin.

Spurt er um fjall. Fjall þetta er gríðarlega mikill ferðamannastaður lands í vestur Evrópu og er það á heimsminjaskrá UNESCO. Á fjallinu er lítið klausturþorp og stendur klaustrið á toppi fjallsins. Sumir vilja reyndar kalla þetta fjall eyju, en sú skilgreining á ekki alltaf við. Fjallið stendur í flóa einum sem á strönd að Atlantshafinu. Fjallið er tengt meginlandinu með mjóu rifi, sem flæddi yfir á flóði áður fyrr, en nú er hægt að keyra að fjallinu hvenær sem er.

Flóinn sem fjallið stendur við, ber nafn fjallsins. Þar má finna mestu sviptingar milli flóðs og fjöru í Evrópu, en munurinn getur orðið allt að 14 metrar. Á lágfjöru er fjallið staðsett 20 km inn í landi, en þegar flæðir að gerist það með ógnarhraða, eða um 3.750 km/klst að meðaltali og breytir fjallinu í eyju.

Hvað heitir fjallið/eyjan og í hvaða landi er það að finna ?

Related posts:

  1. Föstudagsgetraunin – svar Jæja svar við fyrstu föstudagsgetrauninni kom óvenju fljótt. Hildur og...
  2. Föstudagsgetraunin Þá er komið að föstudagsgetrauninni. Í þetta skiptið er spurningin...
  3. Föstudagsgetraunin Jæja þá er komið að föstudagsgetrauninni. Nú er það bleik...
  4. Föstudagsgetraunin Betra er seint… Að þessu sinni er spurningin græn. Spurt...
  5. Föstudagsgetraunin Þó ég hafi ekki verið duglegur að blogga undanfarið, klikka...

Senda færslu í tölvupósti Senda færslu í tölvupósti

« « Meðmæli: Perpetuum Jazzile   |    Forsíða     |    Föstudagsgetraunin – svar » »