« « Meðmæli: Í lest í París   |    Forsíða     |    Hvað ætla ég að verða þegar ég verð stór ? » »

Ég og pabbi í brúðkaupinu mínu

Pabbi, Kenneth og Mozart.

Senda færslu í tölvupósti Senda færslu í tölvupósti

Dagurinn í dag er merkilegur fyrir margar sakir. Ekki er lokum fyrir það skotið að ný ríkisstjórn taki til valda í dag, en það eru aðrar ástæður fyrir því að dagurinn er merkilegur.

Johann Chrysostom Wolfgang Amadeus Mozart, var fæddur þennan dag árið 1756 í Salzburg í Austurríki. Hann varð ekki mjög gamall, því hann lést þann 5. desember 1791 en tókst samt að semja yfir 600 verk.

Mozart

Annað afmælisbarn dagsins er mikill snillingur og stórvinur minn Kenneth Breiðfjörð. Kenneth starfar sem rekstrarstjóri timbursölu húsasmiðjunnar og er því rétti maðurinn til að tala við ef að þið eruð að byggja eða eiga við timburverk af einhverju tagi, svo sem sumarbústaði, stillansa o.fl.

Meistari Breiðfjörð

Síðast en ekki síst er það karl faðir minn sem á afmæli í dag. Hann á eflaust eftir að eyða deginum í rólegheitum eins og vanalega. En pabbi á heima í Bolungarvík og er þar framkvæmdastjóri fiskimjölsverksmiðju, formaður sóknanefndar, syngur í karlakór og kirkjukór, ásamt því að fara á skíði í ræktina og í badminton í frístundum og er ég örugglega að gleyma einhverju. Svo eru margir sem hafa haldið því fram að ég sé aktívur það er þá sennilega þaðan sem ég hef fengið það.

Ég og pabbi í brúðkaupinu mínu

Innilega til hamingju með daginn allir 3, vonandi eigiði góðan afmælisdag.

Related posts:

  1. Til hamingju með afmælið Kenneth! Góðvinur minn Kenneth Breiðfjörð á afmæli í dag. Afmælisdagur Kenneths...
  2. Föstudagsgetraunin – svar Jæja svar við fyrstu föstudagsgetrauninni kom óvenju fljótt. Hildur og...
  3. Var ekki komið vor ? Eftir gott veður og hlýindi síðustu daga hélt ég að...
  4. Bíóferð í Angers Við hjónin skelltum okkur í bíó um síðustu helgi. Krakkar...
  5. Hvað ætla ég að verða þegar ég verð stór ? Þessi spurning hefur leitað ákaft á mig síðustu daga. Ég...

Senda færslu í tölvupósti Senda færslu í tölvupósti

« « Meðmæli: Í lest í París   |    Forsíða     |    Hvað ætla ég að verða þegar ég verð stór ? » »