Barack Obama sór forsetaeið sinn í Bandaríkjunum í gær og varð þar með 44. forseti Bandaríkjanna. Slagorðið GObama fór sem eldur um sinu um netheima í gær. Ég horfði á athöfnina í sjónvarpinu og það er alveg ljóst að amerískir embættismenn og sjónvarpsmenn eru vel sjóaðir í að búa til dramatík. Það sem mér fannst standa uppúr var þegar Aretha Franklin söng bandarísku afbökunina á God save the king/queen. Hún var alveg fanta góð. Það hefur sennilega ekki heldur verið auðvelt fyrir hljóðfæraleikarana að spila í þessum kulda. Sá að píanóleikarinn var í grifflum en fiðlu- klarinettu- og selló- leikararnir voru allir berhentir.
En yfir í annað.
Konunni hans Obama hefur af mörgum verið líkt við Jackie Kennedy. Sagt að hún hafi mjög mikinn stíl og sé hin glæsilegasta kona. Af klæðaburði hennar í gær að dæma, má hins vegar vera nokkuð ljóst að hún hefur litið mikið til annarar konu í þeim efnum.
- Michelle Obama
- Mamma og Tobba
Persónulega finnst mér mamma mun glæsilegri en forsetafrúin.
Related posts:
- Hvað ætla ég að verða þegar ég verð stór ? Þessi spurning hefur leitað ákaft á mig síðustu daga. Ég...
- Lyon var það heillin! Alltaf endar það með því að mánuðir líði á milli...
- Hetjudáð bræðranna að vestan! Við Kristinn bróðir höfum í gegnum tíðina ekki verið þekktir...
- Þá hefur litla fjölskyldan stækkað um helming Jæja loksins er hann gríslingur okkar kominn í heiminn og...
- Kominn aftur til Frakklands með bloggsíðu í farteskinu Jæja... þá er maður loksins að láta undan pressunni. VIð...





Ég treysti því að Michelle hafi hringt og beðið frúnna að vestan um leyfi því hún stal lúkkinu.
Báðar eru þær glæsilegar. En ég er meira hrifinn af orginal upptökum heldur en remixum. Svo Bolungarvík 1 – Washington 0.