Hefur þá göngu sína dagskrárliðurinn fréttaskotið. Í fréttaskotinu verður lögð áhersla á að sinna málefnum og fyrirtækjum sem undirrituðum finnst ekki fá verðskuldaða athygli í öðrum fjölmiðlum.
Að þessu sinni drepum við niður fæti í óvenjulegri vefverslun.
Vefverslunin Japan Trend Shop sérhæfir sig eins og nafnið gefur til kynna í Japönskum vörum. Í þessarri verslun er ótrúlegt úrval af allskyns tækjum, tólum og nauðsynjavörum. Segja má að margar þessara vara uppfylli þörf sem þú vissir ekki að væri til staðar. Hér að neðan verður fjallað nánar um nokkrar þessara vara, en ég hvet lesendur eindregið til að kynna sér vöruúrval síðunnar, því þetta er aðeins toppurinn á ísjakanum.
Við byrjum í klósettdeildinni. Hver hefur ekki lent í því að vera staddur inn í klefa á stóru salerni en ekki þorað að gera stykkin sín af hræðslu við að einhver fyrir utan heyrði í manni hljóðin ? Japanir hafa lausnina við þessum vanda. Með Eco-Otome toilet sound blocker geturðu gert stykkin þín hvar sem er og komið í veg fyrir að nágranni þinn heyri til þín. Toilet sound blocker-inn, er lítið handhægt tæki, sem er fáanlegt í Bleiku, bláu og hvítu.
Með því að þrýsta á hnapp á klósett – hljóðdeyfinum, gefur hann frá sér hljóð, sem líkist því að verið sé að sturta niður. Ýtirðu tvisvar á takkann, stendur hljóðið yfir í 25 sekúndur og veitir þér allt það næði sem þú mögulega þarft til þess að tefla við páfann!
Önnur vara sem ætti að vera til á hverju heimili, er Pee without Noise Stool. Hver einasta húsmóðir hefur oftar en einu sinni bölvað manni sínum í sand og ösku fyrir að hitta illa eða jafnvel ekki í klósettið. Eins þekkja allir hversu leiðigjarnt er að hlusta á bununa lenda í klósettvatninu. Pee without noise stool slær tvær flugur í einu höggi og leysir bæði þessi vandamál.
Fjárfestu í Pee without noise tool og kastaðu hljóðlaust af þér vatni í skínandi hreint klósett.
Næst skulum við kíkja á koddaúrvalið. Að leggja höfuð sitt á þrýstinn kvenmannsbarm, er munaður sem enginn ætti að vera án. Brjóstapúðinn, er gerður úr stífri kvoðu, sem lagar sig fullkomlega að höfði og hálsi.
Brjóstapúðinn er ekki bara eini koddinn sem þú kemur nokkurn tíman til með að þurfa, heldur er hægt að nota hann sem sessu líka !
Sértu meira fyrir að leggja þig með höfuð í kjöltu einhvers, þarftu ekki að leita lengra. Kjöltupúðinn eyðir allri tómleikatilfinningu og veitir þér þá huggun og hlýju sem aðeins er hægt að finna í kvenmannskjöltu.
Kjöltupúðinn er fáanlegur með svörtu og rauðu pilsi.
Hér er aðeins fleytt rjómanum af því gífurlega vöruúrvali sem í boði er í þessari einstöku vefverslun. Þarna má líka finna Kodda með innbyggðri titrandi vekjaraklukku, þráðlaust tæki sem breytir símanum þínum í skjávarpa og vasaljós sem gengur fyrir vatni svo eitthvað sé nefnt. Ég hvet lesendur eindregið til að kynna sér betur vöruúrvalið.
Við endum þessa umfjöllun á myndbandi um Bjórvélmenni, sem tekur af þér ómakið við að hella úr bjórdós í glas. Því miður er þessi vara uppseld í vefversluninni eins og er, en uppfærð útgáfa er væntanleg.
No related posts.







