Við Jóhanna duttum niður á alveg meiriháttar þætti um daginn, The big bang theory. Þættirnir eru um 4 hámenntaða vini sem eru ekki alveg að skilja hvernig mannleg samskipti virka og eina gellu sem gerir ýmislegt til að reyna að kenna þeim það. Í þættinum er einn verkfræðingur sem er sennilega með þeim sorglegri sem fyrirfinnast.
Ég vona að við hjónin komum ekki svona fyrir útávið!
Í þættinum er líka einn félagslega heftur eðlisfræðingur, sem er í algeru uppáhaldi hjá Jóhönnu. Hún meira að segja sagði um daginn að ef hún væri ekki gift mér myndi hún vilja giftast Sheldon af því að hann væri svo skemmtilegur!
Fyrir mér eru þetta bestu grínþættir sem komið hafa út eftir FRIENDS æðið í “gamla daga”. Það er hægt að sjá einhverja af þeim á netinu, annað hvort á Tv-shack eða Videostic
Related posts:
- Meðmæli: Michael Jackson tribute Vegna veikinda á ritstjórninni duttu niður nokkrir fastir bloggliðir í...
- Meðmæli: Perpetuum Jazzile Rakst á þetta Vídjó hjá einum fésbókarvini mínum. Þetta er...
- Meðmæli: Gjöfin fyrir ömmu og afa Ég rakst á þennan merkilega myndaramma á vafri mínu um...
- Meðmæli: Í lest í París Ég hefði ekki haft mikið á móti því að vera...
- Meðmæli: Hugmyndirnar í Gulleggi Innovit 2010 Það er gaman að sjá hversu gífurlega mikil þátttaka er...




