Í kvöld er komið að úrslitakvöldinu í söngvakeppni sjónvarpsins. Það virðist vera ein af mörgum þjóðaríþróttum Íslendinga að þykjast hafa ekki gaman af evróvisjón þó svo að áhorfsmælingar sýni alltaf gríðarlegt áhorf á keppnina. Ég er hins vegar einn af þeim fáu sem hef gríðarlega gaman af þessari keppni og skammast mín ekkert fyrir það.
Í gegnum tíðina hefur evróvisjón alltaf verið tilefni til partýa. Ég man eftir ófáum eurovision partýum heima í Bolungarvík. Árið sem Selma lenti í öðru sæti með All out of luck var sérstaklega gott partý enda íslenska lagið þrusu gott og ekki á hverju ári sem Ísland lendir í öðru sæti.
Eitt af minnisstæðari Eurovision partýunum hins vegar var þegar Einar og Thelma kepptu fyrir Ísland með laginu Tell me.
Það partý héldum við heima hjá Hjalla Fribba með þvílíku tilstandi. Settum upp þrusu hljóðkerfi og vorum með annað sjónvarp, þar sem við gátum ekki hugsað okkur að missa af Friends á stöð 2. Stjörnur partýsins voru sennilega Martha Pálma og Hávarður. Af tillitsemi við þau ætla ég ekki að rifja upp of mikið hér, en læt þeim sem voru þarna eftir að rifja upp gott kvöld. Minnir að rauðvín, hvítur fatnaður og fight club hafi eitthvað komið við sögu.
En þá yfir í íslensku undankeppni. Það eru 6 nokkuð ólík lög sem etja kappi í kvöld. Af þeim 6 eru þrjú sem gætu hugsanlega fallið í flokkinn týpísk júró lög og 3 sem má segja að séu svona wild card lög.
Fyrst á svið í kvöld er Íris Hólm með lagið The one.
Þetta er eitt af þeim lögum sem væri hægt að flokka sem týpískt júró lag. Ágætis ballaða með nokkuð grípandi viðlag og Íris syngur þetta mjög vel. Greinilegt að höfundurinn Birgir Jóhann Birgisson er undir áhrifum af íslenska laginu frá því í fyrra Is it true og treystir á það að kröftug ballaða falli í góðan jarðveg annað árið í röð. Lagið í fyrra var hins vegar betra finnst mér og ég hef ekki trú á því að þetta lag verði framlag Íslands í ár.
Annar á svið í kvöld er Matti Matt með lagið Out of sight.
Þetta er eitt af þeim lögum sem er ekki þetta týpíska júró lag. Ekkert svakalega gott lag að mínu mati og Matti hefur oft notið sín betur en í þessu lagi. Þetta lag á örugglega eftir að fá mikla spilun heima, en á ekki heima í Eurovision. Lagahöfundurinn Matthías Stefánsson er hörku góður á fiðluna og hefur væntanlega verið að horfa til velgengni Alexanders Rybak frá því í fyrra. Það lag var hins vegar miklu meira grípandi og höfðaði án efa til mun stærri og breiðar hóps en þetta lag gerir. Ég spái því að þetta lag fari ekki til Osló fyrir Íslands hönd.
Þriðja lagið í kvöld er One more day sem Jógvan Hansen syngur.
Þetta lag fellur án efa í hópinn týpískt Júró lag. Svolítill Bryan Adams í því á köflum. Finnst það frekar fyndið að Bubbi Morthens sé farinn að taka þátt í Júróvision, en hann smyglaði sér bakdyrameginn inn í keppnina. Óskari Páli var boðið að taka þátt í keppninni sem höfundur lagsins í fyrra og Bubbi teikaði hann. Jógvan syngur þetta lag ágætlega og lagið er fínt. Það væri skemmtilegt að senda Færeying fyrir okkar hönd í Eurovision, en ég er ekki viss um að svo verði. Hlutlaust mat þá er þetta annað tveggja þeirra laga sem ég held að fari út fyrir 0kkar hönd en ég hugsa að hitt lagið verði ofan á.
Fjórða lagið eru Hvanndalsbræður með lagið Gleði og Glens.
Þetta lag er annað wild card. Mjög skemmtilegt lag og ekki týpískt Júró lag. Þarna sjáum við fiðluna aftur sem er eðlilegt miðað við velgengni Rybak í fyrra. Textinn og lagið er skemmtilegt og strákarnir eru flottir á sviði. Mér finnst ótrúlegt hvernig er hægt að spila á trommur og syngja á sama tíma. Þetta lag á eflaust eftir að fá fína kosningu. Margir þeirra sem þykjast ekki hafa gaman af júróvision vilja ekki sjá þessi týpísku júró lög fara áfram og eiga án efa eftir að kjósa Hvanndalsbræður. Samt sem áður held ég að þetta lag eigi ekki eftir að keppa fyrir Íslands hönd í Osló.
Fimmta lagið er Hera Björk með Lagið Je ne sais quoi
Þetta lag er samið eftir uppskriftinni af týpísku Júró lagi. Hera er frábær söngkona og lagið er grípandi. Ég er búinn að vera með það á heilanum frá því ég heyrði það fyrst, sem er einkenni góðs eurovision lags. Svo hefur það líka “júró hækkunina” sem gerir það jafnvel að enn meira júró lagi. Það hefði verið gaman að sjá Heru keppa fyrir Danmörku í fyrra, en það verður skemmtilegra að sjá hana keppa fyrir Ísland. Ég er nokkuð viss um að þetta lag verði það lag sem fer til Noregs fyrir Íslands hönd.
Síðasta lagið á svið er Waterslide með Sjonna Brink.
Þetta er uppáhalds lagið mitt í keppninni í ár. Ekki hið týpíska júró lag en svona ekta “feel good” lag. Verður án efa vinsælt heima í sumar. Þetta er svona ekta lag til að hlusta á þegar maður situr einhversstaðar í sól og blíðu með kaldan bjór. Röddunin kemur vel út og Sjonni Brink er hörku söngvari og hefur alltaf verið í miklum metum hjá mér eftir Söngleikinn Bítl. Ég hef aldrei verið mjög hrifinn af Hreimi sem söngvara, en það kemur ekki að sök í þessu lagi. Meiriháttar “feel good” lag en ég held að það fari ekki til Noregs.
Samantekt:
Þau tvö lög sem eru líklegust til að fara áfram að mínu mati eru:
- Je ne sais quoi
- One more day
Í þessari röð. Skemmtilegasta lag keppninnar er hins vegar að mínu mati lagið Waterslide með Sjonna Brink.
Væri gaman að sjá spá frá fleirum í commentakerfinu.
Smá update: rakst á Matta Matt lagið unplugged það er miklu betra þannig.
Horfa á öll myndböndin stór
Related posts:
- Meðmæli: Perpetuum Jazzile Rakst á þetta Vídjó hjá einum fésbókarvini mínum. Þetta er...
- Meðmæli: Gjöfin fyrir ömmu og afa Ég rakst á þennan merkilega myndaramma á vafri mínu um...
- Meðmæli: Í lest í París Ég hefði ekki haft mikið á móti því að vera...
- Jólagetraun Guðni og Hildur voru með skemmtilega getraun á síðunni sinni...
- Þá hefur litla fjölskyldan stækkað um helming Jæja loksins er hann gríslingur okkar kominn í heiminn og...



Síðan þín er fáránlega flott frændi! Það þarf að kommenta svona oftar en einu sinni. Mér líst líka mjög vel á þennan rythma hjá þér í blogginu. Þetta fer vel af stað.