« « Meðmæli: Hugmyndirnar í Gulleggi Innovit 2010   |    Forsíða     |    Söngvakeppnin – spá fyrir kvöldið » »

20479_295977378448_690323448_3331274_4627538_n

Nýjar myndir, heimsókn og Jóhanna Renault gella

Senda færslu í tölvupósti Senda færslu í tölvupósti

Síðustu dagar eru búnir að vera nokkuð góðir hjá okkur hérna í Prakkaralandinu. Fréttin af nýju frænkunni heima á Íslandi spilar þar verulega inn í þó svo að betra væri nú að geta verið heima og hitt prinsessuna og nýbökuðu foreldrana.

Á mánudaginn fengum við símtal frá Evu “systur” í Köln. Toni hennar þurfti að skreppa yfir til Parísar og hún ákvað að drífa sig og Alexander Breka með. Þau komu til okkar á mánudagskvöldið og fóru aftur til Kölnar í gær. Það var rosalega gaman að fá þau ekki síst fyrir Guðmund Elí sem fékk að leika sér við Alexander Breka vin sinn, sem er nokkurn veginn á sama aldri og Guðmundur Elí ( 11 dögum eldri). Settum inn nokkrar myndir af þeim félögunum í Janúar möppuna á myndasíðunni.

Í gær komu svo fréttir sem við erum búin að bíða eftir nokkuð lengi. Jóhanna fékk símtal frá Renault og er búið að ganga frá því að hún vinnur lokaverkefnið sitt í Logistique deildinni hjá þeim. Hún byrjar 15. febrúar og verður að lágmarki í 25 vikur, eða ca. fram til 9. ágúst.

Nú vantar bara að heimilisfaðirinn fari að ákveða hvað hann ætlar að verða þegar hann verður stór til að líf okkar allra verði komið í fastar skorður. Ef þiði hafið hugmyndir um verkefni eða vinnu handa mér þá endilega látiði mig vita í commentakerfinu.

Related posts:

  1. Heimsókn og frönskupróf Jæja, þegar kvartanir eru farnar að berast í commentakerfinu um...
  2. Er ekki kominn tími á smá blogg ? Jæja, ég geri fastlega ráð fyrir að okkar dyggu lesendur...
  3. Þá hefur litla fjölskyldan stækkað um helming Jæja loksins er hann gríslingur okkar kominn í heiminn og...
  4. Afmæli og Þýskalandsferð Síðustu dagar eru aldeilis búnir að vera viðburðaríkir hjá okkur...
  5. Jólamarkaður Í gær ákváðum við að skella okkur á fyrsta dag...

Senda færslu í tölvupósti Senda færslu í tölvupósti

« « Meðmæli: Hugmyndirnar í Gulleggi Innovit 2010   |    Forsíða     |    Söngvakeppnin – spá fyrir kvöldið » »