« « Til hamingju með afmælið afi!   |    Forsíða     |    Meðmæli: Hugmyndirnar í Gulleggi Innovit 2010 » »

prinsessa_Kristinsdóttir

Guðmundur Elí orðinn stóri frændi

Senda færslu í tölvupósti Senda færslu í tölvupósti

Kristinn bróðir og Salóme eignuðust litla stelpu í morgun. Hún lét nú ekkert svakalega mikið bíða eftir sér prinsessan, því samkvæmt öllu átti hún að koma í heiminn fyrsta febrúar en kom kl. 1:57 í nótt.

Ég hugsa að amma Guðrún sé ánægð núna, enda er þetta fyrsta stelpan í fjölskyldunni. Mamma á bara bræður, bara stráka og fram af þessu bara stráka sem barnabörn. Eitthvað segir mér að litla prinsessan eigi eftir að verða vel dekruð af ömmu sinni og örugglega afanum líka.

Þegar Kristinn og Salóme voru búin að fá að vita að þetta væri stelpa, hringdi Kristinn í okkur út með fréttirnar. Mamma hélt að hann væri að grínast, var löngu búin að gefa upp vonina með að fá litla stelpu í fjölskylduna. Þegar hann hringdi í mig varð ég líka frekar hissa, hélt að við bræðurnir gætum bara eignast stráka eins og pabbi. Kristinn varð þá fljótur að segja “ég kann þetta”. Sem er þá samkvæmt honum eitthvað annað en við eldri bræður hans.

Innilega til hamingju, vildum að við gætum verið heima til að sjá hana en hlökkum til að fá að sjá myndir.

Related posts:

  1. Húsnæðismál Halló halló! Eins og einhverjir hafa eflaust frétt þá skelltum...
  2. Hvor er hvað ? Mamma og pabbi sögðu strax þegar þau sáu myndir af...
  3. Fréttir Jæja þá, ætli það sé ekki best að fara að...
  4. Gríslablogg Eins og sést myndunum sem fylgja með þessari færslu má...
  5. Hetjudáð bræðranna að vestan! Við Kristinn bróðir höfum í gegnum tíðina ekki verið þekktir...

Senda færslu í tölvupósti Senda færslu í tölvupósti

« « Til hamingju með afmælið afi!   |    Forsíða     |    Meðmæli: Hugmyndirnar í Gulleggi Innovit 2010 » »